Síðustu vígi vísdómsins Sigurður Ingvarsson skrifar 1. mars 2026 13:02 Í síðastliðinni viku fékk ég kassa heim til mín frá mömmu, fullan af gömlum námsbókum frá því að ég var í MR. Hún sagði mér að fara í gegnum þetta ef ég vildi eiga eitthvað af þessu, gefa það eða henda. Um þessar mundir er ég að leikstýra leikfélagi skólans, Herranótt, og bauð nemendum að hirða eitthvað af þessu. Flest af námsefninu er reyndar ekki lengur nothæft fyrir þá, eftir að skólinn var styttur um eitt námsár. Einu nothæfu bækurnar voru úr latínu, grísku og fornfræði. Með fullri virðingu fyrir öðrum námsgreinum, en þá voru þessar bækur eiginlega þær einu sem ég vildi helst ekki gefa frá mér. Ég fylltist hlýju og gleði við að fletta í gegnum þær og áttaði mig á því, að þetta voru bækur sem höfðu raunverulegt tilfinningalegt gildi fyrir mér. Ég fletti í gegnum Ummyndanir Óvidíusar og Ódysseifskviðu og hugsaði með mér „Guð, hvað ég fékk afburðagóða kennslu í þessu.“ Ég man enn fyrstu setningarnar í Gallastríðum Caesars „Gallia omnis divisa est in partis tris…“ og hvernig maður braut heilann yfir því hvers vegna hann orðaði hlutina svona, og hvers vegna hann byrjaði skrifin á að telja upp dyggðir andstæðinganna. Einnig er mér minnisstætt að skoða Jóhannesarguðspjall á frummálinu og velta fyrir mér óteljandi möguleika á túlkun textans og hvernig margt í Nýja testamentinu hefur verið misskilið í gegn um aldirnar. Sumir myndu kalla þetta nördaskap, en ég var ekkert besti nemandinn, og oft nennti ég ekki að læra heima eða var upptekinn af félagslífinu. Innst inni fann ég samt alltaf að námsefnið sem var til kennslu þarna var eitthvað merkilegt, svo ég ákvað yfirleitt að lesa fyrst fyrir þessi fög frekar en önnur. Margir vina minna og samferðamanna í MR lýstu yfir erfiðleikum með latínu og þurftu jafnvel að velja nýmáladeild sökum þessa. En allir þeir sem ég tala við í dag sem lærðu latínu á sínum tíma segja að þeir höfðu afskaplega gott af því og eru sammála mér um það að þarna var verið að kenna eitthvað veigamikið og viturlegt.Nú er sótt að þessum greinum og til stendur að stytta latínukennslu við skólann um heilt ár í viðbót við þá styttingu sem varð fyrir tveimur árum þegar tekin var ákvörðun um að fækka þeim árum sem nemar á nýmálabraut lærðu latínu úr tveimur í eitt. Það lítur út fyrir það að rektor skólans og menntamálayfirvöld í landinu finnist latína og klassísk menntun ekki jafn mikilvæg og flestir þeir sem hafa kynnst henni. Nemendur skólans eru óánægðir. Ekki aðeins þeir sem eru á málabraut, heldur einnig á náttúrufræðibraut, þar sem vel á minnst er kennd forngríska sem valfag og nemendur tala mjög vel um.Latína og forngríska eru meðal áhrifamestu tungumála mannkynssögunnar. Þær voru ríkjandi alþjóðatungumál í Evrópu og við Miðjarðarhaf í meira en þúsund ár. Til samanburðar hefur enska einungis verið lingua franca í um eina öld. Fyrir framtíðar jarðarbúa væri ómögulegt að skilja menningu heimsins í dag nema að einhverjir skyldu enn þá ensku. Á Grikklandi til forna, og einnig í fjölda annarra menningarríkja fornaldar, t.a.m. í Kína, Indlandi og Júdeu, var skólakerfið byggt á því að efla það sem var kallað „viska“ (sófía), fremur en almenna þekkingu. Hvað var meint með því? Jú, að megintilgangurinn ætti að vera að fæða vitsmuni nemenda með hreinum sannleika eða vísdómi. Þessi aðferð við að tengjast hugsun okkar og tilgangi, fólst í því að geta greint rétt frá röngu – þetta er það sem Herakleitos kallaði „lögmál alheimsins“ og Aristóteles skýrði síðar sem „rökhugsun“ eða einfaldlega „logos“ (orð og skynsemi). Viskunni fylgir andlegt innsæi til að bera vitni um leikinn á milli sannleika og blekkingar. Í heimi þessara fornu kennara var æðsta markmið menntakerfisins að byggja upp þessa getu hjá nemendum. Í Fornmáladeild MR var okkur meðal annars kennt þetta, á lifandi, skemmtilegan og uppbyggilegan hátt. En það virðist sem svo að nú séu þessar kennsluaðferðir taldar úreltar. Áherslur sem þessar eru langt frá námskrá íslenskra skóla. Þess í stað á að gera alla að sömu litlu skrúfunum í framleiðslukerfi samfélagsins. Ég er ekkert að skafa ofan af þessu, ég stend í þeirri trú að Fornmáladeild MR bjóði upp á eitt besta nám á Íslandi í hugvísindum. Ég fór í Háskóla Íslands beint eftir útskrift og kröfurnar þar voru ekki jafn miklar og í MR. Allir sem voru með mér á Formáladeild og fóru síðan í hugvísindi í Háskólanum segja það sama. Eftir eitt ár í HÍ fór ég í Listaháskólann, þar sem ég naut, til mikillar hamingju, djúpstæðrar kennslu á mannsandanum og gerðist leikari. Ég get sagt með góðri samvisku að engin önnur deild í framhaldsskólum landsins, hefði getað undirbúið mig betur í að skilja sögulegt samhengi listarinnar, en Fornmáladeildin í MR – táknfræðina, menningararfleiðina og heimspekina. Það að skilja uppruna vestrænnar menningar, heimspeki, og lista, fær okkur til að skilja á hverju samfélag okkar byggir — lagaumhverfi, stjórnsýsla, hefðir, og síðast en ekki síst; hugsun og orðræða.Ef það er einskis virði, þá þurfum við sem samfélag að finna eitthvað nýtt sem kennir þetta í staðinn. Ég skora á menntamálayfirvöld að skoða þetta mál frekar. Það er verið að eyðileggja MR með þessu. Eina framhaldsskólans á Íslandi sem heldur úti raunverulegri menntun í klassískum fræðum. Höfundur er leikari og stúdent frá MR 2018 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Skoðun Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun