Um rektor tala ég ekki Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 2. mars 2026 08:02 „Schevingum metuo, Egilsson laudibus orno,Gunnlaugsson adamo, de Lectore dicere nolo.“ Kváðu skólapiltar Bessastaðaskóla á öndverðri 19. öld og gáfu okkur seinni tíma mönnum þar með ágæta og skemmtilega sýn inn í þann anda og stemmningu sem ríkti yfir einu íslensku menntastofnun þess tíma. Þessi litla latínuvísa er ágætis vitnisburður um þá manngerð sem helstu kennarar skólans á þeim tíma höfðu að geyma, frumkvöðlar í menntavísindum og hvatamenn að endurreisn íslenskra mennta og tungu. Vísan er ekki síður frábær heimild um hvert viðhorf nemenda var til kennara sinna. Og til skólameistara síns, lector theologiæ. Vísan þýðist svo: „Af Scheving stendur mér ótti, Egilsson prýði ég hrósi,Gunnlaugsson er mér ástsæll, um lektor tala ég ekki.“ Kennararnir góðu sem kveðið er um voru engir aðrir en Hallgrímur Scheving, Sveinbjörn Egilsson og Björn Gunnlaugsson, sem óhætt er að segja að hafi gegnt lykilhlutverki í námi og uppeldi skólapiltanna sem fóru svo háðslegum orðum um skólastjóra sinn, Jón Jónsson í Lambhúsum. Þeim skólapiltum þótti nefnilega ekki mikið til Jóns koma og þótti hann skorta stórhug og hafa lítilsgildar hugmyndir um skólann. Piltarnir dáðu aftur á móti kennarana þrjá Hallgrím, Sveinbjörn og Björn og fundu hvernig þeir stóðu fyrir mikilli endurreisn menntunar í landinu á þeim tíma með áherslu á fornmálin: latínu, grísku og hebresku. Tókst þeim þremenningum með klassískri kennslu í fornfræði og hugvísindum að kveikja óslökkvandi bál áhuga og ástríðu í brjósti nemenda sinna. Ekki aðeins á fornfræði heldur einnig á íslenskri tungu, ljóðlist, menningu, náttúruvísindum og mannskepnunni sjálfri. En allt hófst það með fornfræðinni. Latínunni. Á meðal nemenda þeirra þremenninga má til að mynda nefna Jónas Hallgrímsson og aðra Fjölnismenn, einhverja merkustu Íslendinga sem uppi hafa verið. Minni fornmál góð fyrir fornmálabraut Um þessar mundir berst fornmálabraut Menntaskólans í Reykjavík (áður Bessastaðaskóli) í bökkum. Og þeir sem sækja harðast að henni eru þeir sem maður hefði haldið að ættu að vera helstu verndarar hennar, rektor skólans og menntamálayfirvöld í landinu. Fyrir tveimur árum tók Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor skólans, ákvörðun um að minnka við latínukennslu í MR og fækka þeim árum sem nemar á nýmálabraut lærðu latínu úr tveimur í eitt. Heilt ár af klassískri menntun þurrkað út. Á þeim tíma lofaði rektor því í viðtali að þetta væri alls ekki vísbending um að aðrar og verri breytingar fyrir latínumenntun skólans væru á leiðinni. Gekk hún svo langt að lýsa því yfir að þessi niðurskurður latínunnar um eitt ár væri „ekki eitthvað sem er neikvætt fyrir latínukennslu í skólanum.“ Minni latínukennsla er alls ekki verri fyrir latínukennslu! Og kannski að latínukennslan verði betri og betri í augum rektors eftir því sem minna verður af henni? Maður gæti hæglega dregið þá ályktun því nú tveimur árum síðar, þvert á öll loforð, á að skera enn annað árið niður. Nú af fornmálabrautinni. Braut sem beinlínis gefur sig út fyrir að kenna fornmál og klassísk fræði. Einu braut menntaskóla á Íslandi sem heldur úti raunverulegri menntun í klassískum fræðum. Þeim fræðum sem vestræn menntasaga byggist á. Þeim fræðum sem allir helstu háskólar Evrópu eiga rætur sínar að rekja til. Þeim fræðum sem MR á sjálfur rætur sínar að rekja til, allt til latínunáms í Skálholtsskóla fyrir tæpum þúsund árum síðan. Aftur tekst rektornum að setja skerðingu á latínunámi í jákvæðan búning eftir helstu kenningum góðra almannatengsla: breytingin er ekki af hinu slæma, heldur einungis gerð til að laða fleiri að brautinni. Breytingin verður góð fyrir fornmálabraut og latínukennslu á endanum, vittu til. Minni fornmál eru góð fyrir fornmálabraut. En ekki hvað? Kaldar kveðjur til nemenda Og minni kröfur til nemenda eru af hinu góða! Í frétt upp úr viðtali við rektor á Vísi síðastliðinn mánudag segir beinlínis: „Sólveig segir marga nemendur hafa kvartað undan því að fagið sé þungt á fyrsta ári og því hafi þau ákveðið að breyta til.“ Það er aldeilis metnaðurinn. Þegar nemendur kvarta yfir námi (líklega þúsaldargamalt vandamál) þá auðvitað bregðumst við við því og gerum minni kröfur til þeirra. Minna nám er betra, eru skilaboðin héðan. Það eru einkennileg skilaboð til nemenda í 10. bekk sem þú ert að reyna að fá til að koma á fornmálabraut að segja þeim að latína sé svo erfið að á tveggja ára fresti verði að skerða kennsluna og kröfur til nemenda um heilt námsár, svo þeir komist nú í gegnum þetta torf. Á sama tíma reynir rektor að kæfa gagnrýni á málið með því að segja að öll umræðan um skerðinguna geti virkað fráhrindandi fyrir mögulega nýnema brautarinnar. Það eru kaldar kveðjur til nemenda skólans sem gagnrýna þessa aðför skóla- og menntayfirvalda að fornmálabrautinni. Þeim ætti að hrósa í hástert og raunar hvetja fleiri nemendur til að láta í sér heyra. Skóli sem vill ekki umtal nemenda um eigið nám og námsframboð verður aldrei heillandi skóli. Það vill enginn rektor MR vera sá rektor sem rekur síðasta naglann í kistu fornmálabrautar og rjúfa þannig þúsaldarlanga hefð fyrir latínukennslu framhaldsskólanema á Íslandi. Hér óttast maður þó að verið sé að gera allt til að koma málum þannig fyrir að fornmálabrautin verði sjálfdauð. Allavega er erfitt að sjá hvernig aðgerðir og orðræða skólayfirvalda í MR er til þess fallin að laða nýja nemendur að brautinni. Það kæmi ekki á óvart ef gamall latínuvísubútur heyrðist úr kennslustofum fornmálabrautar um þessar mundir: de rectore dicere nolo… Hvar eru skólayfirvöld? Vissa samúð hef ég með rektornum þó mér finnist svör hennar við gagnrýni nemenda í hæsta máta undarleg og senda alröng skilaboð þrungin metnaðarleysi til þeirra. Það getur varla annað verið en að einhver þrýstingur berist úr menntamálaráðuneytinu þar sem öll áhersla síðustu missera virðist vera á að steypa framhaldsskólum landsins í nákvæmlega sama mótið í hagkvæmniskyni. Sá skaði sem unninn var á íslensku menntakerfi með styttingu framhaldsskólanna, án nokkurra aðgerða með tilfærslu námsgreina niður í grunnskóla eins og til stóð, er enn óuppgerður. Rýrnun klassískrar menntunar á framhaldsskólastigi er eflaust ein birtingarmynd af skaða styttingarinnar en MR hafði tekist að halda latínukennslu á fornmálabraut óbreyttri (3 ár) eftir styttinguna þar til nú. Vissulega eru fáir nemendur á fornmálabraut og ef horft er á brautina út frá bláköldu rekstrarlegu sjónarmiði, sem maður óttast að menntamálaráðuneytið geri, þá er grundvöllur hennar lítill. En er það virkilega rétta leiðin til að líta á síðustu framhaldsskólabraut landsins sem enn kennir klassísk fræði? Það er ansi sorglegt ef svo er og ég trúi ekki öðru en að rektor nái samkomulagi við menntayfirvöld um eðlilegan og öflugan stuðning til að endurreisa fornmálabraut til fyrri vegar og auka þannig á ný vægi klassískrar menntunar í landinu. Höfundur er íslenskufræðingur og stúdent af málabraut Menntaskólans í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Sjá meira
„
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun