Hagkvæmt húsnæði á hagkvæmum kjörum Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar 2. mars 2026 14:01 Bankarnir hagnast um 93 milljarða á einu ári. Væri þessum hagnaði deilt á íslendinga þá fengi hver og einn í sinn hlut um þrjú hundruð þúsund krónur. Fyrir flesta er það dágóð summa sem munar um. Þessi hagnaður er fyrst og fremst tilkominn vegna vaxtamunar þar sem hávextir og verðbætur búa til tekjurnar. Á sama tíma og bankarnir hagnast og fitna eins og púkinn á fjósbitanum eiga fjölskyldur í erfiðleikum með að ná endum saman. Bankarnir eru búnir að gulltryggja sig með því að lána heimilunum verðtryggð lán með okurvöxtum í boði seðlabankastjóra og nú er svo komið að ungt fólk á í erfiðleikum með að kaupa sína fyrstu fasteign. Bróðurpartur ráðstöfunartekna heimilanna fer í vexti og afborganir eða verðtryggða húsaleigu. Seðlabankastjóri lætur eins og eina leiðin til að ná niður verðbólgu sé sú að hækka vexti á lánum sem tekin voru undir allt öðrum forsendum en þeim sem eru í dag. Þannig bíta stýrivaxtahækkanir mest á þeim skulda, og tóku lán jafnvel fyrir einhverjum árum síðan. Forsendur fjölskyldna til að standa í skilum gufa upp um leið og fyrsta afborgun fellur í gjalddaga. Til að aðstoða unga fólkið við að komast í eigin íbúð stendur ríkisstjórnin fyrir aðgerðum við að byggja hentugt, hagkvæmt húsnæði en það er ekki nóg ef vextir lánanna eru í hæstu hæðum. Nú þarf annað átak ríkisstjórnarinnar. Þannig er að Landsbankinn er að mestu leyti í eigu ríkisins og því getur ríkið sem eigandi ráðið talsverðu um eigendastefnu bankans. Ég legg til að eigandi bankans sjá til þess að hann stofni nýjan lánaflokk sem væri eingöngu fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaði. Þessi lánaflokkur yrði ekki verðtryggður með neinni vísitölu og með hóflegum föstum vöxtum allan lánatímann. Þetta myndi verða til þess að ungt fólk gæti allt í einu skipulagt fjármálin og átt fyrir fasteigninni. Afborganir lána yrðu jafnar og vitneskjan um upphæð afborgana væri þekkt frá mánuði til mánaðar. Auðvitað þarf að setja upp alls konar sanngjarnar reglur og girðingar þannig að þessi lánaflokkur yrði ekki misnotaður og ég held að bankinn eigi ekki í erfiðleikum með að gera það, enda með helling af alls konar fræðingum í vinnu. Vissulega myndi þetta tákna að hagnaður Landsbankans myndi minnka eitthvað en er það ekki í góðu lagi. Samfélagið á ekki að vera byggt upp þannig að almenningur noti meirihluta ráðstöfunarfjár síns til þess að greiða fjármagnseigendum sífellt stærri hluta. Þetta yrði fyrsta skrefið að afnámi verðtryggingar og í framhaldinu yrði áhersla markaðarins á að halda niðri verðbólgu með öðrum leiðum en sífelldum stýrivaxtahækkunum. Krafan er því hagkvæmt húsnæði á hagkvæmum kjörum. Höfundur er varaþingmaður Flokks fólksins. Eins stjórnarmaður í VR og Hagsmunasamtökum heimilanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jónas Yngvi Ásgrímsson Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar