Sonur Åge Hareide ráðinn til Molde Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2026 16:00 Bendik Hareide er kominn til starfa hjá norska fótboltafélaginu Molde. Bendik Hareide hefur verið ráðinn til knattspyrnufélagsins Molde en um er að ræða nýstofnað verkefnastarf til að efla sókn í viðskiptaþróun og nýsköpun.
Þetta tilkynnir Molde á heimasíðu sinni í dag. Hinn 47 ára gamli er sonur Åge Hareide heitins, fyrrum þjálfara íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Åge Hareide lést í desember eftir baráttu við krabbamein. Nú fær sonur hans starf hjá einu sigursælasta félagi norska fótboltans undanfarin ár. „Molde FK býr yfir umtalsverðum möguleikum á mótum knattspyrnulegrar sérþekkingar, gagnagreiningar, vörumerkis og stefnumótandi samstarfs. Mitt verkefni verður að þróa þetta samspil áfram og tryggja að nýsköpun og tækni skili sér í áþreifanlegum íþróttalegum og viðskiptalegum verðmætum – bæði fyrir félagið og samstarfsaðila okkar,“ sagði Bendik Hareide í yfirlýsingu. „Ég hef verið með annan fótinn í fótboltanum í mörg ár, bæði í félaginu og sem stjórnarmaður. Nú tek ég við nýju hlutverki hjá Molde Fotballklubb og þá er rétt fyrir mig að stíga til hliðar hjá Tingh. Nú heldur Tingh áfram inn í spennandi áfanga, um leið og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til frekari þróunar Molde FK. Fyrir mér snýst þetta um að hafa skýr skil á milli þeirra hlutverka sem ég gegni,“ sagði Bendik. Þá segir enn fremur að í starfinu felist að sameina reynslu innan úr knattspyrnuheiminum og vinnu á sviði fjölmiðla, vörumerkjauppbyggingar og hagnýtrar notkunar nýrrar tækni. Bendik Hareide var áður yfirmaður íþróttamála hjá enska C-deildarliðinu Burton Albion en hætti í því starfi af persónulegum ástæðum fyrir ári síðan. Á sunnudaginn tók Bendik við gullmerki norska knattspyrnusambandsins fyrir hönd föður síns. „Fyrir hönd fjölskyldu okkar vil ég þakka auðmjúklega fyrir að þið heiðrið pabba með gullmerki NFF,“ sagði Bendik Hareide og hélt áfram: „Það hefði átt að vera pabbi sem stæði hér í staðinn fyrir mig. Þetta voru verðlaun sem reyndist erfitt að veita pabba, því honum tókst aldrei að gefast upp. Hefði hann ekki veikst get ég lofað ykkur því að hann hefði verið landsliðsþjálfari einhvers staðar,“ bætti hann við. View this post on Instagram A post shared by Molde Fotballklubb (@moldefotballklubb)
Norski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira