Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. mars 2026 15:20 Rothschild-fjölskyldan hefur verið kennd við ýmiss konar samsæri. Þau hafa verið sögð stýra fjármálakerfum heimsins, geimleiserum gyðinga og sjálfu veðrinu. Getty Sagt er að Rothschild-fjölskyldan fjármagni á víxl fasískar og kommúnískar byltingar, stýri veðrinu með geimleiserum, dreifi pestum um jarðarkringluna og jafnvel að hún hafi einkaleyfi á Covid-19.
Prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann kafa ofan í goðsögnina um þessa frægu bankaætt í tveggja þátt umfjöllun Skuggavaldsins um Rothschild-fjölskylduna. Í fyrri þættinum, „Raunveruleikinn á bak við goðsögnina,“ var sögulegur uppgangur ættarinnar rakinn frá fátækt í Frankfurt til æðstu auðæva og áhrifa í Evrópu. Í seinni þættinum, „Stóra skrímslið í huga samsæriskenningasmiða,“ sem birtist í dag er sagt frá því hvernig ættin varð að aðalskotmarki samsæriskenningasmiða og blóraböggli sem notaður er til að útskýra allt sem miður fer í heiminum. „Satan“ og uppruni goðsagnarinnar Goðsögnin um illsku ættarinnar hófst ekki með raunverulegum gjörðum hennar heldur með uppspuna. Árið 1846 kom út bæklingur í Frakklandi undir höfundardulnefninu „Satan“, þar sem því var ranglega haldið fram að Nathan Rothschild hefði viljandi fellt breska markaðinn eftir orrustuna við Waterloo til að hagnast sjálfur. Þessi saga lifði góðu lífi og varð síðar miðpunktur í bíræfnum áróðri nasista í myndinni Die Rothschilds í leikstjórn Erich Waschneck árið 1940. En hatrið á ættinni byggir á merkilegri mótsögn. Á sama tíma og nasistar máluðu Rothschild upp sem táknmynd „hins gráðuga kapítalíska gyðings“, héldu hægrimenn í Bandaríkjunum því fram að ættin hefði í raun fjármagnað rússnesku byltinguna og staðið á bak við kommúnismann. „Sama hver pólitík þín er, þá er Rothschild alltaf vondi kallinn,“ segir Hulda í þættinum. Seðlabankastjórn, geimleiserar gyðinga og veðurstýring Lífseigasta kenningin snýr þó að peningaprentun heimsins. Oft er vitnað í ættföðurinn Mayer Amschel þar sem hann á að hafa sagt að sá sem stjórni peningum þjóðar sé æðri lögunum. Sú tilvitnun er hrein fölsun frá árinu 1935. Engu að síður trúa margir því staðfastlega að Rothschild-ættin eigi Seðlabanka Bandaríkjanna og stýri honum í gegnum leppa sína. Þar að auki er ættin sögð tróna á toppi píramídans í svokallaðri Nýrri heimsskipan þar sem hún stýri hnattrænum elítufélögum á borð við Bilderberg-hópinn. Alsjáandi augað á toppo pýramídans á seðli Bandaríkjadalsins hefur í samsæriskenningum verið notað til að tengja landsfeður Bandaríkjanna við Illuminati.Getty Með tilkomu samfélagsmiðla tók goðsögnin um Rothschild á sig nýjar myndir. Bandaríska þingkonan Marjorie Taylor Greene sem er alræmd fyrir áhuga sinn á samsæriskenningum gaf til dæmis í skyn árið 2018 að aðilar tengdir Rothschild stýrðu geimleiserum (e. Jewish Space Lasers) sem hefðu kveikt skógarelda í Kaliforníu. Þá hefur ættin verið sökuð um að stýra veðrinu í gegnum HAARP-rannsóknarstöðina. „Ef veðrið er vont ... þá er það Rothschild,“ segir Eiríkur um þær fráleitu kenningar. Raunveruleikinn í dag En hver er þá raunveruleg staða fjölskyldunnar árið 2026? Eiga þau helming auðæva heims, líkt og haldið er fram? Svo er ekki og auður ættarinnar hefur raunar þynnst gífurlega út á sjö til átta kynslóðum og dreifst á hundruð afkomenda og margar af frægustu höllum þeirra, líkt og Waddesdon Manor í Bretlandi, eru í dag opinber söfn. Barónin Philippe De Rothschild (1902-88) var sonur Henri de Rothschild og partur af enska hluta Rothschild-fjölskyldunnar. Getty Bankinn þeirra, Rothschild & Co, er vissulega virtur fjárfestingabanki, en hann er svokallaður „boutique“ banki og er hvergi á listum yfir stærstu banka heims. Eiríkur og Hulda taka sem dæmi í þættinum að Elon Musk gæti auðveldlega keypt upp allan Rothschild-bankann með broti af auðæfum sínum. En goðsögnin um Rothschild fjölskylduna virðist hvorki vera útvötnuð né á undanhaldi enda er hugmyndin um að heimurinn sé fullur af stjórnlausum tilviljunum, ófyrirsjáanlegum faröldrum og náttúruhamförum stundum skelfilegri en sú tilhugsun að einhver haldi í raun um stjórntaumana bak við tjöldin. Hægt er að hlusta á báða þætti Skuggavaldsins um Rothschild-ættina á helstu hlaðvarpsveitum.
Skuggavaldið Frakkland Bretland Bandaríkin Tengdar fréttir Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með leynivopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður hafa glímt við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki. 14. febrúar 2026 22:36 Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Yfirleitt er ekki eftirsóknarvert að verða skotspónn samsæriskenninga. Orðspor skaðast, tortryggni magnast og allt samtal verður eldfimt. Denver-alþjóðaflugvöllurinn í Colorado er þó óvenjuleg undantekning, því þar tókst stjórnendum smám saman að snúa vörn í sókn og gera samsæriskenningar um flugvöllinn hluta af eigin ímynd. 2. febrúar 2026 13:02 Hvers vegna halda 9/11-samsæriskenningar enn velli? Fáir atburðir samtímans hafa skapað jafn mikla tortryggni og árásirnar 11. september 2001. Í mörgum samsæriskenningum eru bandarísk stjórnvöld sögð hafa annaðhvort skipulagt árásirnar eða vísvitandi látið þær gerast, til að fá átyllu til hernaðar í Írak. 24. nóvember 2025 10:06 Mest lesið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors stjarna Bíó og sjónvarp 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjá meira
Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með leynivopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður hafa glímt við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki. 14. febrúar 2026 22:36
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Yfirleitt er ekki eftirsóknarvert að verða skotspónn samsæriskenninga. Orðspor skaðast, tortryggni magnast og allt samtal verður eldfimt. Denver-alþjóðaflugvöllurinn í Colorado er þó óvenjuleg undantekning, því þar tókst stjórnendum smám saman að snúa vörn í sókn og gera samsæriskenningar um flugvöllinn hluta af eigin ímynd. 2. febrúar 2026 13:02
Hvers vegna halda 9/11-samsæriskenningar enn velli? Fáir atburðir samtímans hafa skapað jafn mikla tortryggni og árásirnar 11. september 2001. Í mörgum samsæriskenningum eru bandarísk stjórnvöld sögð hafa annaðhvort skipulagt árásirnar eða vísvitandi látið þær gerast, til að fá átyllu til hernaðar í Írak. 24. nóvember 2025 10:06
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“