Móðurmálið er gjöf sem endist ævinlangt Guðbjörg Magnúsdóttir og Renata Emilsson Pesková skrifa 3. mars 2026 10:32 Tungumál er grunnur að sjálfsmynd, námi og tengslum barna við fjölskyldu sína. Þegar barn fær að rækta móðurmál sitt styrkir það ekki aðeins málþroska sinn, vitsmunaþroska og málvitundina heldur líka tilfinningu fyrir rótum sínum og uppruna. Á Alþjóðadegi móðurmálsins 21. febrúar komu fjölskyldur saman á viðburði Móðurmáls - samtaka um tvítyngi, og Heimilis og skóla - landsamtaka foreldra, til að fagna tungumálum, menningu og mikilvægi móðurmálsins. Mikil gleði ríkti á hátíðinni og að okkar mati var þetta skýr áminning um að tungumál er hjartað í tengslum barna við önnur börn, fjölskyldu og uppruna. Ný íslensk rannsókn á tungumálastefnum fjölbreyttra innflytjendafjölskyldna á Íslandi sýnir að fjölskyldur vilja viðhalda sínum móðurmálum heima fyrir en treysta skólum fyrir íslenskukennslu. Foreldrar og kennarar finnast samstarfið mikilvægt, en efla þarf samskipti, samvinnu og betrumbæta samtöl. Rannsakendur kalla eftir kerfisbundinni samþættingu tungumálaauðlinda nemenda inn í námsumhverfi til að auka inngildingu, eflingu náms, virkni og félagslega þátttöku og valdefla nemendur og kennara (Ragnarsdóttir et al., 2025, bls. 7). Móðurmálið er ekki aðeins tæki til samskipta heldur mikilvæg undirstaða sjálfsmyndar barna. Það mótar hugsun þeirra, tilfinningatjáningu og skilning á heiminum. Börn sem fá að rækta móðurmál sitt þróa með sér betri málfærni, sterkari orðaforða og aukið sjálfstraust sem styður þau í námi og félagslegum samskiptum. Hjá Heimili og skóla leggjum við ríka áherslu á að foreldrar séu lykilaðilar í námi og velferð barna sinna. Það á ekki síst við um tungumálið. Að styðja við móðurmál barna er um leið að styðja við barnið sem heild. Sterk undirstaða í móðurmáli styrkir íslenskufærni og leggur grunn að betri námsárangri. Þetta er ekki spurning um að velja á milli tungumála heldur þarf að rækta þau öll. Samstarf skiptir miklu máli. Móðurmál – samtök um tvítyngi hefur í þrjátíu ár unnið að því að styðja við fjöltyngi og efla erlend móðurmál barna. Heimili og skóli vinnur að því að styrkja foreldra í sínu hlutverki og efla samstarf heimila og skóla um land allt. Með samvinnu viljum við skapað öflugri stuðning fyrir allar fjölskyldur, og þá sérstaklega fjölskyldur af erlendum uppruna. Virkni foreldra í skólasamfélaginu skiptir sköpum fyrir líðan og árangur barna, óháð tungumálum og menningarbakgrunni. Til að tryggja raunverulega þátttöku þurfum við að mæta fjölskyldum af virðingu, veita upplýsingar á skýru máli og, eftir þörfum, á fleiri tungumálum. Þannig sköpum við vettvang þar sem allir foreldrar upplifa að rödd þeirra skipti máli. Ef við stöndum saman að þessu verkefni styrkjum við ekki aðeins einstakar fjölskyldur heldur allt skólasamfélagið. Þannig byggjum við upp samfélag þar sem öll börn fá að blómstra og nýta styrkleika sína til fulls. Höfundar eru Guðbjörg Magnúsdóttir, sérfræðingur Heimilis og skóla – landsamtök foreldra og Renata Emilsson Pesková, formaður Móðurmáls - samtaka um tvítyngi. Heimild: Ragnarsdóttir, H., Jónsdóttir, K., Benediktsson, A. I., Tran, A.-D., Emilsson Peskova, R., Lefever, S., Eiríksdóttir, A. K., & Suson Jónsdóttir, K. L. (2025). Tungumálastefna og starfshættir fjölbreyttra fjölskyldna innflytjenda á Íslandi og áhrif þeirra á menntun (rannsóknarskýrsla). Menntavísindastofnun, Háskóli Íslands. https://doi.org/10.33112/HSZG7265 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar