Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaup er farið yfir málin Hagkaup 3. mars 2026 15:48 „Við sjáum að ungt fólk er að kaupa meira af snyrtivörum og sterkari vörur,“ segir Eva Laufey Kjaran markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaup Eva Laufey Kjaran, markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaup segir að kauphegðun meðal ungs fólks sé að breytast er varðar snyrtivörur. Unglingar allt niður í 13 ára kaupa í auknum mæli sýrur og krem sem ætluð eru eldri húð. Á fermingarkvöldum Hagkaups er boðið upp á fræðslu fyrir börn og forráðamenn. „
Ég er enginn sérfræðingur í húðumhirðu en ég vinn í Hagkaup og við erum stór á snyrtivörumarkaði. Við sjáum að ungt fólk er að kaupa meira af snyrtivörum og sterkari vörur,“ segir Eva, unglingar séu undir mikilli útlitspressu. „Ég öfunda þau ekki, það eru miklar kröfur á unglinga í dag. Þau fá allskyns skilaboð um hvernig þau eiga að líta út og sjá fólk á samfélagsmiðlum sem þau líta upp til sýna vörur og húðrútínur með mörgum skrefum sem hentar mögulega þeim sem eldri eru. En af hverju ættu börn sem eru 13 eða 14 ára að bera á sig sýrur og sterk krem? Okkur finnst það vera skylda okkar að fræða börnin og unglingana. Í Svíþjóð og Noregi eru sumar verslanir að setja aldurstakmark á krem en við erum ekki komin þangað. Við viljum einbeita okkur að aukinni fræðslu.“ segir Eva. Á fermingarkvöldum Hagkaups er farið rækilega yfir þessi mál. „Við höfum haldið fermingarkvöld í 4 ár þar sem við bjóðum upp á fræðslu um húðumhirðu og bjóðum bæði forráðamönnum og börnum. Markmiðið er að auka fræðslu og vitund um virknina í sterkum húðvörum sem henta ekki ungu fólki. Við biðjum krakkana í raun um að nota sem minnst því húðin þeirra er falleg og heilbrigð. Það er eðlilegt að vera með bólur á unglingsárum. Húðin er stærsta líffærið okkar og hún er lifandi, sýnum hana eins og hún er. Í síðustu viku og þessari viku höfum við tekið á móti rúmlega 300 manns en við vorum með stóran viðburð í Reykjavík í síðustu viku sem gekk mjög vel. Næsti viðburður verður á Akureyri á fimmtudaginn,“ segir Eva og bætir við að fermingarkvöldin kosti ekkert. „Við bjóðum upp á fræðsluna og þar hún Lilja Gísladóttir sem er hluti af markaðsteymi Hagkaups sem stýrir fræðslunni og gerir það einstaklega vel. Við höfum unnið þessi kvöld í samvinnu með Beautyklúbbnum og markmið okkar er einfalt: að skapa vettvang fyrir fræðslu og opna umræðu um húðumhirðu og sjálfsmynd ungs fólks. Við erum afar stolt af þessu verkefni og finnum sterkt fyrir því að þörfin er til staðar og því ætlum við að halda áfram,“ segir Eva að lokum.
Tíska og hönnun Fermingar Hár og förðun Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Fleiri fréttir Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira