Sýknudómur Brims í máli sjómannsins ómerktur Árni Sæberg skrifar 4. mars 2026 14:09 Axel Jósefsson Zarioh féll fyrir borð fiskiskips á vegum Brims í Vopnafirði þann 18. maí 2020. Viku síðar var leit að Alex hætt. Tæpu ári síðar, þann 4. apríl 2021, fundust líkamsleifar í flæðamáli fjöru í Vopnafirði sem síðar kom í ljós að tilheyrðu Axel heitnum. Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Landsréttar um sýknu Brims hf. af öllum kröfum foreldra ungs skipverja sem drukknaði á sjó í maí 2020. Málið verður því tekið fyrir á ný í Landsrétti.
Dómur Hæstaréttar þess efnis var kveðinn upp klukkan 14. Hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Foreldrar sjómannsins fengu leyfi Hæstaréttar til áfrýjunar á þeim grundvelli að annmarkar kynnu að hafa verið á málsmeðferð Landsréttar. Foreldrarnir töldu málið hafa verulega almenna þýðingu á sviði einkamálaréttarfars í ljósi annmarka á málsmeðferð Landsréttar. Þeir hefðu hvorki fengið að flytja mál sitt munnlega né leiða nánar tilgreind vitni fyrir réttinn. Af sömu ástæðu væri dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi til. Sem áður segir ómerkti Hæstiréttur dóm Landsréttar og vísaði málinu aftur til Landsréttar til löglegrar málsmeðferðar. Málskostnaður var felldur niður milli aðila en Brim lét sig málið ekki varða fyrir Hæstarétti. Ráðinn þrettán dögum fyrir slysið Axel Jósefsson Zarioh féll fyrir borð fiskiskips á vegum Brims í Vopnafirði þann 18. maí 2020. Viku síðar var leit að Alex hætt. Tæpu ári síðar, þann 4. apríl 2021, fundust líkamsleifar í flæðamáli fjöru í Vopnafirði sem síðar kom í ljós að tilheyrðu Axel heitnum. Foreldar Axels höfðuðu mál á hendur Brimi og tryggingafélagi útgerðarinnar, TM, til greiðslu miskabóta. Meðal annars byggðu þeir á því að Axel, sem var ráðinn á bátinn 13 dögum fyrir slysið, hefði ekki verið skráður á öryggisfræðslunámskeið þegar hann hóf störf. Sýkna í héraði og Landsrétti Bæði héraðsdómur og Landsréttur höfðu áður komist að þeirri niðurstöðu að foreldrunum hefði ekki tekist að sanna að slysið hefði orðið vegna saknæmrar háttsemi af hendi Brims og því sýknað útgerðarfélagið. Arnar Vilhjálmur Arnarsson, lögmaður foreldranna sagði í samtali við fréttastofu eftir dóm Landsrétta að ákvörðun Landsréttar um að sýkna félögin hefði verið umbjóðendum hans vonbrigði, þrátt fyrir að hún hefði ekki endilega komið á óvart. Hann benti á að staða foreldranna til að afla sönnunarganga hefði verið erfið. Þeir hefðu verið annars staðar á landinu þegar sonur þeirra féll útbyrðis, enginn hefði séð þegar það gerðist og upptökumyndavélar í bátnum hefðu ekki verið virkar þegar Axel féll fyrir borð. „Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsakar þetta ekki, og lögregla rannsakar málið að takmörkuðu leyti sem slys. Það sem við höfum í höndum eru því gríðarlega fátækleg gögn um það sem gæti hafa gerst.“
Dómsmál Vopnafjörður Sjávarútvegur Brim Tengdar fréttir Tókst ekki að sanna að Brim bæri ábyrgð á dauða sonar þeirra Landsréttur hefur sýknað Brim hf. og TM tryggingar hf. af skaðabótakröfu foreldra ungs skipverja sem drukknaði á sjó í maí 2020. Dómurinn féllst ekki á að með því að vanrækja öryggis- og eftirlitsskyldu sína gagnvart skipverjanum hafi útgerðin bakað sér skaðabótaskyldu á hendur foreldrunum. 9. október 2025 22:00 Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni foreldra sem krefja Brim hf. og TM hf. um miskabætur vegna andláts sonar þeirra sem féll fyrir borð af netabáti þegar hann starfaði hjá Brimi í maí 2020. Dómurinn byggði ákvörðun sína á því að annmarkar kunni að hafa verið á málsmeðferð Landsréttar í málinu. 24. desember 2025 09:27 Brunaði austur til að finna litla frænda Móðursystir ungs manns sem drukknaði í Vopnafirði tók sjálf þátt í leitinni að honum, og segist ekki hafa getað setið aðgerðalaus eftir að frændi hennar féll í sjóinn. Hún safnar nú fé fyrir hönd foreldranna. Þeir hafa þurft að standa sjálfir straum af dýru dómsmáli sem tapaðist. 23. október 2025 19:48 Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira
Tókst ekki að sanna að Brim bæri ábyrgð á dauða sonar þeirra Landsréttur hefur sýknað Brim hf. og TM tryggingar hf. af skaðabótakröfu foreldra ungs skipverja sem drukknaði á sjó í maí 2020. Dómurinn féllst ekki á að með því að vanrækja öryggis- og eftirlitsskyldu sína gagnvart skipverjanum hafi útgerðin bakað sér skaðabótaskyldu á hendur foreldrunum. 9. október 2025 22:00
Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni foreldra sem krefja Brim hf. og TM hf. um miskabætur vegna andláts sonar þeirra sem féll fyrir borð af netabáti þegar hann starfaði hjá Brimi í maí 2020. Dómurinn byggði ákvörðun sína á því að annmarkar kunni að hafa verið á málsmeðferð Landsréttar í málinu. 24. desember 2025 09:27
Brunaði austur til að finna litla frænda Móðursystir ungs manns sem drukknaði í Vopnafirði tók sjálf þátt í leitinni að honum, og segist ekki hafa getað setið aðgerðalaus eftir að frændi hennar féll í sjóinn. Hún safnar nú fé fyrir hönd foreldranna. Þeir hafa þurft að standa sjálfir straum af dýru dómsmáli sem tapaðist. 23. október 2025 19:48