Vopnafjörður

Vopnafjörður

Mannfjöldi: 648 (2025). Flatarmál: 1.903 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Össur stendur með sundmönnunum

Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra tekur upp hanskann fyrir sundkappana á Vopnafirði. Hann segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson mega við daglegum sundspretti og styður hann í málinu, svo lengi sem hráa hakkið verði eftir á bakkanum.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Á­fall fyrir bæjar­fé­lagið

Sveitarstjóri á Vopnafirði segir nýlegar uppsagnir hjá fiskvinnslu Brims í bænum vera mikið áfall fyrir sveitarfélagið. Framkvæmdastjóri uppsjávarvinnslu hjá Brim segir uppsagnirnar hafa átt sér aðdraganda frá árinu 2018.

Innlent
Fréttamynd

Fengu boð í grill­veislu en ekki að kjósa

Aðeins einn listi bauð fram til sveitarstjórnar í Vopnafjarðarhreppi þetta árið og voru fulltrúar O-lista – Sterk stoð því sjálfkjörnir. Engin kosning fór fram í ljósi þessa en frambjóðendur gerðu sér glaðan dag og buðu íbúum í grillveislu, að sögn Stefáns Guðnasonar sem skipar annað sæti listans.

Innlent
Fréttamynd

Hæsti­réttur hlýðir ekki á Jón Þór

Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Jóns Þórs Dagbjartssonar, sem var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­kjörið á Vopna­firði

Einungis einn framboðslisti barst yfirstjórn Vopnafjarðarhrepps fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og telst hann því sjálfkjörinn. Um er að ræða nýjan framboðslista sem kallar sig Sterk stoð, en Íris Edda Jónsdóttir, verkefnastjóri stjórnsýslu, leiðir listann.

Innlent
Fréttamynd

Vinna á­fram að alþjóðahöfn og iðnaðar­svæði í Finnafirði

Fulltrúar þýska félagsins Bremenports eru enn áhugasamir um uppbyggingu alþjóðahafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes og segja aðstæður þar ákjósanlegar. Þetta kom fram á íbúafundi á Þórshöfn í síðustu viku en Þjóðverjarnir nýttu einnig Íslandsheimsóknina til að funda með fulltrúum forsætisráðuneytis.

Innlent
Fréttamynd

Snjó­ruðnings­tæki sat fast

Björgunarsveitir voru kallaðar út úr öllu áttum í gær til aðstoðar ferðafólki sem sat fast á Möðrudalsöræfum. Þá var annað útkall á Borgarfirði eystri vegna snjóruðningsvélar sem hafði fests.

Innlent
Fréttamynd

Glóru­laust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr

Hátt í fimmtíu bílar voru fastir á veginum sem liggur yfir Möðrudalsöræfi á milli Jökuldals og að Vopnafjarðarafleggjaranum í gær. Harðduglegur strákur sinnti vegaaðstoð og reyndi eftir fremsta megni að losa bíla sem margir voru illa búnir og ófjórhjóladrifnir húsbílar í leigu erlendra ferðamanna.

Innlent
Fréttamynd

Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana

Landsréttur hefur þyngt dóm yfir Jóni Þór Dagbjartssyni og gert honum að sæta fangelsi í sjö ár, frekar en sex, fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps. Landsréttur taldi það hafið yfir skynsamlegan vafa að Jón hefði ætlað sér að svipta fyrrverandi sambýliskonu sína lífi.

Innlent
Fréttamynd

Spenna vegna nýs mats á stærð loðnu­stofnsins

Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Brunaði austur til að finna litla frænda

Móðursystir ungs manns sem drukknaði í Vopnafirði tók sjálf þátt í leitinni að honum, og segist ekki hafa getað setið aðgerðalaus eftir að frændi hennar féll í sjóinn. Hún safnar nú fé fyrir hönd foreldranna. Þeir hafa þurft að standa sjálfir straum af dýru dómsmáli sem tapaðist.

Innlent
Fréttamynd

„Það er aldrei hægt að kaupa barnið manns til baka“

Móðir ungs manns sem drukknaði í Vopnafirði í sínum fyrsta túr á sjó segir erfitt að hugsa til þess að skjótari viðbrögð skipverja á bátnum hefðu getað bjargað lífi hans. Hún og barnsfaðir hennar hafa tapað máli gegn útgerðinni á tveimur dómstigum, en ætla sér alla leið með málið hvað sem það kostar.

Innlent
Fréttamynd

Gögn sem fyrst voru ekki til brunnu síðar

Lögmaður foreldra sem hafa árangurslaust reynt að sækja bætur til Brims hf. og TM trygginga eftir að sonur þeirra drukknaði á sjó vorið 2020 segir óvíst hvort leitað verði til Hæstaréttar vegna málsins. Hann segir sönnunarstöðu foreldranna í málinu einstaklega erfiða. Brim og TM voru sýknuð af kröfum foreldranna í Landsrétti í vikunni.

Innlent