Misskilningur: Kaþólska kirkjan fordæmir ekki samkynhneigða Lilja Benatov Hjartar skrifar 5. mars 2026 06:30 Eftir að hafa hlustað á þáttinn Meining þar sem Anna Gyða Sigurgísladóttir, dagskrárgerðarkona, ræðir við Séra Jakob Rolland langar mig að benda á nokkur atriði. Það fer enginn fram á að þú sért kaþólskur. Ég hef farið í messur á Íslandi, bæði í lútherskri kirkju og kaþólskri. Í lútherskri kirkju eru stundum fleiri í kórnum en kirkjugestir. Í kaþólsku kirkjunni er oft betra að mæta tímanlega til að fá sæti. Anna Gyða Sigurgísladóttir segir að samkynhneigð sé synd sem er hennar túlkun. Séra Jakob hefur þegar sagt að svo sé ekki. Séra Jakob útskýrir í viðtalinu: „Kynhneigð er bara einn þáttur af mörgum öðrum sem varða tilhneigingar einstaklingsins til einhvers lífsstíls sem er ekki góður fyrir einstaklinginn og ekki góður fyrir samfélagið.“ Hann gerir greinarmun á hneigðinni sjálfri (sem er ekki synd) og athöfnum (sem kirkjan telur syndugar). Þetta er í fullu samræmi við opinbera kenningu kaþólsku kirkjunnar í Catechism of the Catholic Church (§2357–2359): Samkynhneigða á að meðhöndla með virðingu, samúð og næmni, og er kallað eftir skírlífi (chastity). Kirkjan fordæmir ekki fólk fyrir það sem það er, heldur hvetur til siðferðilegs lífs sem gildir fyrir alla. Kaþólska kirkjan fordæmir ekki samkynhneigða – ekki frekar en hún fer fram á brennur eins og á tímum nornaveiðanna. Fólk er eins og það er. Kirkjan bannar ekki samkynhneigðum að sækja messu. Eins og séra Jakob segir: „Allir eiga heima í kirkjunni og mega ákalla guð til að fá hreinsun sálarinnar og komast til himnaríkis.“ Og hann bætir við: „En það þýðir um leið að [maður þarf] virkilega að rannsaka eigið líferni.“ Þetta snýst um andlega leiðsögn fyrir þá sem sjálfir óska eftir henni – ekki breytingu á hneigðinni með valdi eða skipulagðar meðferðir. Hann nefnir líka: „Og „conversion“ – sinnaskipti – þetta er lykilorð í daglegu lífi hjá kaþólsku fólki. Við erum í þeirri stöðu, stöðugt, að snúa okkur frá hinu illa til þess góða.” Spurningin um altarisgöngu er upp á hvern og einn að dæma sjálfur hvort hann gangi til altaris til að taka á móti sakramentinu – hvort sem er um samkynhneigðan eða gagnkynhneigðan einstakling að ræða. Séra Jakob bendir á: „Allir sem mæta í kirkjuna eru með sín vandamál og syndir, glíma við slæmar tilhneigingar að einhverju leyti. Allir eru krjúpandi, stundum grátandi frammi fyrir guði, frammi fyrir styttu heilagrar Maríu meyjar og biðja um hjálp. Við erum allir í sömu stöðu í rauninni.“ Reglan um iðrun synda gildir jafnt fyrir alla, ekki bara samkynhneigða – þetta er ekki útskúfun heldur persónuleg ábyrgð gagnvart sakramentinu. Kaþólska kirkjan fer ekki fram á það að samkynhneigðir verði gagnkynhneigðir. Hún veitir andlega aðstoð ef fólk vill breyta líferni sínu, en engar skipulagðar bælingarmeðferðir eru til staðar, eins og séra Jakob staðfestir. Hefur fólk í æðstu stöðum á hinu háa íslenska Alþingi ekki lestrar- eða heyrnarskilning? Eða skilning á töluðu máli? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem er sjálf kaþólsk, ætti að vita betur en að „garga með páfagaukunum“ án þess að hlusta á viðtalið í heild sinni. Hún segist vera „djúpt hrygg“ yfir orðræðunni, en túlkunin á orðum prestsins virðist oftast vera of dramatísk miðað við það sem raunverulega var sagt. Þetta heitir sleggjudómur. Það er eins og blaðamaðurinn (Anna Gyða Sigurgísladóttir) hafi verið að leita að einhverju kræsilegu til að setja út á. Fyrirsögn RÚV „Kaþólska kirkjan á Íslandi hvetur til bælingar á samkynhneigð“ notar orð sem vísar til ólöglegrar meðferðar, en orð prestsins snúast um hefðbundna andlega leiðsögn og siðfræði kirkjunnar – ekki virka hvatningu til valdsbreytinga. „Það sem mér finnst skrítið og raunar mjög merkilegt“ er túlkun blaðakonunnar á viðtali hennar við séra Jakob. Höfundur hefur verið kaþólskur frá árinu 2015. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Hinsegin Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar