Þekking er lykillinn að lausnum í loftslagsmálum Guðfinna Aðalgeirsdóttir, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Halldór Björnsson, Sæunn Stefánsdóttir og Þorvarður Árnason skrifa 5. mars 2026 10:30 Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun samtímans. Til að bregðast við þeim þurfum við ekki aðeins pólitískar ákvarðanir og tæknilausnir heldur einnig traustan þekkingargrunn. Rannsóknir á loftslagsmálum eru því ekki jaðarmál heldur grundvöllur skynsamlegrar stefnumótunar og ábyrgra ákvarðana. Áhrif loftslagsbreytinga eru þegar farin að koma fram hér á landi. Jöklar hopa, úrkomumynstur breytast og aftakaveður verða tíðari. Hlýnun hefur áhrif á vistkerfi, atvinnuvegi og innviði og breytingarnar munu halda áfram að móta samfélagið á komandi áratugum. Til að skilja þessar breytingar, meta áhættu og undirbúa samfélagið fyrir framtíðina þarf öflugar og samfelldar rannsóknir. Á mörgum sviðum er enn veruleg þörf á frekari þekkingu. Við þurfum betri skilning á áhrifum mögulegra breytinga í hafhringrás, á kolefnisbúskap landsins og á samspili loftslagsbreytinga og líffræðilegrar fjölbreytni. Einnig þarf að skilja betur hvernig loftslagsbreytingar geta haft áhrif á atvinnulíf, á heilsu, heilbrigðiskerfi og samfélagið í heild. Þá þarf að greina betur flókna kerfisáhættu, hvernig breytingar í náttúru, efnahag og samfélagi geta haft víðtæk og samverkandi áhrif. Loftslagsmál kalla á þverfaglega nálgun þar sem áhrifin koma fram á nánast öllum sviðum þjóðlífsins. Jarðvísindi, líffræði, sálfræði, verkfræði, hagfræði, heilbrigðisvísindi, hugvísindi, félagsvísindi og listir þurfa að vinna saman. Slík samvinna þvert á fræðigreinar og þekkingarsvið er forsenda þess að við fáum heildstæða mynd af áskorununum og mögulegum lausnum. Við teljum mikilvægt að skapa vettvang þar sem vísindafólk frá háskólum, stofnunum og víðar að úr samfélaginu getur komið saman að loftslagsrannsóknum. Þverfaglegur samstarfsvettvangur – loftslagssetur - gæti gengt lykilhlutverki við að styrkja samstarf milli rannsóknahópa og stofnana, styðja við og efla miðlun þekkingar til stjórnvalda, almennings og atvinnulífs. Umræðan um stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi og þörfina fyrir aukið samstarf er einmitt í brennidepli nýrrar viðburðaraðar við Háskóla Íslands: Loftslagsmál og rannsóknir. Markmið hennar er að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um loftslagsrannsóknir og hlutverk þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku, með áherslu á samtal milli vísindafólks og tengingu fræðasamfélags, stjórnsýslu, almennings og atvinnulífs. Fyrsti viðburðurinn fer fram á morgun, föstudaginn 6. mars, kl. 13–15 í Auðarsal í Veröld, Háskóla Íslands, og verður einnig í beinu streymi. Þar verður fjallað um stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og brýna þörf á aukinni samhæfingu rannsókna og miðlun á niðurstöðum þeirra. Ef við sem þjóðfélag ætlum að takast á við loftslagsbreytingar af alvöru þarf að byggja ákvarðanir á traustri og víðtækri þekkingu. Öflugar loftslagsrannsóknir eru lykilforsenda þess að samfélagið allt geti brugðist við þeim breytingum sem nú þegar eru hafnar og munu halda áfram að aukast. Guðfinna Aðalgeirsdóttir, jöklafræðingur og prófessor við Jarðvísindadeild HÍ Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands Sæunn Stefánsdóttir, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra HÍ og sviðstjóri þróunarsviðs HÍ Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Hornafirði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vísindi Loftslagsmál Mest lesið Dregur til tíðinda Hannes Pétursson Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir skrifar Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Minna fólk – aðrar þarfir Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland skrifar Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar