Eyjólfur færir klukkuna aftur Eiður Þór Árnason skrifar 5. mars 2026 22:35 Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og þingmaður Flokks fólksins. Vísir/Bjarni Stöðvarskylda leigubílstjóra var endurvakin með lagabreytingu sem samþykkt var á Alþingi í dag. Þurfa bílstjórar að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð með gilt starfsleyfi og verður stöðvunum skylt að skrá allar ferðir, þar á meðal upphafs- og endastöð, staðsetningu bifreiðar, akstursleið og greiðslur farþega.
Einnig er stöðvum gert að bjóða farþegum að koma á framfæri kvörtunum og ábendingum með einföldum hætti, til að mynda um óeðlilega hátt verð eða slæma þjónustu. Leigubílstjórum verður einnig skylt að upplýsa farþega um þessi réttindi og að þeir geti kvartað til viðeigandi stjórnvalda. Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðsins. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra lagði fram frumvarpið og hefur með þessu afnumið umdeildar breytingar á leigubifreiðalögunum sem samþykktar voru árið 2022, í tíð Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra. Bílstjórar mótmæltu síðustu breytingum Með lagabreytingunni árið 2022 voru skilyrði fyrir leigubílaakstri í atvinnuskyni rýmkuð, meðal annars með því að afnema reglur um heildarfjölda starfsleyfa og áðurnefnda stöðvarskyldu. Hagsmunasamtök leigubílstjóra lögðust gegn þessum breytingum sem samþykktar voru þegar Framsókn sat í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Vinstri grænum en lögin auðvelduðu nýjum bílstjórum að komast inn á markaðinn. Fyrir lagabreytingu síðustu ríkisstjórnar hafði Eftirlitsstofnun EFTA lýst því yfir að gildandi reglur um leigubílaleyfi á Íslandi væru ekki í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Þáverandi löggjöf hafi gert nýjum rekstraraðilum erfitt eða ómögulegt að komast inn á markaðinn. Ætlað að tryggja aukið aðhald „Það er fagnaðarefni að Alþingi hafi samþykkt nauðsynlegar breytingar á lögum um leigubifreiðaþjónustu. Stöðvaskylda hefur verið endurvakin og rafrænt eftirlit innleitt, sem tryggir aukið aðhald og öryggi í greininni. Ný reglugerð hefur nú lokið samráðsferli og verður ný námskrá kynnt fljótlega,“ er haft eftir Eyjólfi í tilkynningu ráðuneytisins. „Þetta er fyrsta skrefið í að leggja grunn að leigubifreiðamarkaði sem byggir á fagmennsku, öryggi og gagnsæi. Markaði sem speglar þá gestrisni sem við viljum að einkenni Ísland. Farþegar eiga rétt á öruggu verðlagi og leigubílstjórar á heilbrigðu starfsumhverfi þar sem leikreglur eru skýrar.“ Boðar sérstakar númeraplötur Eyjólfur boðar einnig breytingar á reglugerð sem snúi meðal annars að eftirliti Samgöngustofu með leyfishöfum, próftöku, eftirliti með námskeiðshöldurum, hátternisreglum leigubifreiðastöðva og kröfum um framsetningu á verðskrá og sýnileika á leyfisskírteinum. Þá standi til að auðkenna leigubíla með sérstökum lituðum númeraplötum. Eyjólfur segir lagabreytingarnar sem samþykktar voru í dag vera fyrstu skrefin í heildarendurskoðun á starfsumhverfi leigubílstjóra.
Leigubílar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira