„Konan mín gagnrýndi það sem ég sagði og mamma mín líka“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2026 13:02 Gustavo Marques baðst afsökunar á ummælum sínum en það kom ekki í veg fyrir tólf mánaða bann. Getty/Maciej Rogowski Brasilískur íþróttadómstóll dæmdi varnarmann úrvalsdeildarliðsins Bragantino í tólf leikja bann fyrir kynferðisleg ummæli sem hann lét falla um kvenkyns dómara eftir leik í São Paulo-deildinni.
Varnarmaðurinn heitir Gustavo Marques og hann var einnig sektaður um þrjátíu þúsund brasilísk ríal (715 þúsund íslenskar krónur) fyrir ummæli sín um dómarann Daiane Muniz eftir að Bragantino tapaði 2-1 fyrir São Paulo í átta liða úrslitum deildarkeppninnar þann 21. febrúar síðastliðinn. Bannið gildir fyrir allar keppnir á vegum knattspyrnusambands São Paulo-fylkis, en kemur ekki í veg fyrir að Marques spili í keppnum á landsvísu eins og brasilísku deildinni eða brasilíska bikarnum. „Það var draumur okkar að komast í undanúrslit eða jafnvel úrslitaleikinn, en hún eyðilagði leikinn fyrir okkur. Ég held að knattspyrnusamband São Paulo-fylkis þurfi að skoða leiki af þessari stærðargráðu og ekki setja konu til að dæma,“ sagði Marques í viðtali við TNT Brazil eftir leikinn. „Það gengur ekki að við spilum á móti São Paulo, Palmeiras, Corinthians og þeir setja konu til að dæma leik af þessari stærðargráðu,“ sagði Marques súr og svekktur en síðar baðst hann afsökunar á samfélagsmiðlum sínum. „Ég var taugaóstyrkur og sagði hluti sem ég hefði ekki átt að segja. Ég talaði við Daiane og bað hana líka afsökunar. Hún var með aðstoðardómara með sér og ég bað hana líka fyrirgefningar því hún er líka kona. Það var rangt af mér að segja þetta,“ sagði hinn 24 ára gamli varnarmaður. „Konan mín gagnrýndi það sem ég sagði, mamma mín líka. Ég sýni að ég er karlmaður og manneskja með því að koma hingað og biðjast fyrirgefningar á því sem ég sagði,“ bætti hann við. Hvorki Marques né Bragantino hafa tjáð sig um úrskurðinn. Fjölmiðlar á svæðinu greindu frá því að félagið hefði sektað varnarmanninn um fimmtíu prósent af launum hans þennan mánuðinn.
Brasilía Fótbolti Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Sjá meira