Körfubolti

Þjálfari Almars lofar að mæta á sund­skýlu ef þeir vinna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Travis Steele, þjálfari Miami, hefur gefið öllum loforð um að mæta á sundskýlu í sjónvarpið og þakka um leið sundliði skólans fyrir stuðninginn.
Travis Steele, þjálfari Miami, hefur gefið öllum loforð um að mæta á sundskýlu í sjónvarpið og þakka um leið sundliði skólans fyrir stuðninginn. X

Miami-háskólaliðið er búið að vinna alla þrjátíu leiki sína í bandaríska háskólakörfuboltanum í vetur og þarf bara sigur í lokaleiknum til að vinna alla deildarleiki tímabilsins.

Almar Orri Atlason og félagar spila lokaleikinn á móti Ohio Bobcats í kvöld en svo tekur við úrslitakeppni MAC-deildarinnar.

Það er mikil umræða um þennan óvænta árangur Miami í bandarískum fjölmiðlum. Lokaleikurinn verður í beinni á ESPN2.

Miami OH er síðasta ósigraða liðið í háskólakörfuboltanum og ef þeir klára deildarkeppnina ósigraðir mun þjálfari þeirra, Travis Steele, klæðast sundskýlu á valdaginn (e. Selection Sunday) til að þakka sundliðinu fyrir stuðninginn.

Hann gaf það loforð í sjónvarpsviðtali fyrir nokkru en síðan hefur lið hans unnið fimm leiki til viðbótar.

Sundlið skólans mætti á leiki körfuboltaliðsins á sundskýlunni og studdi frábærlega við bakið á sínu liði. Nú lofar Steele því að launa þeim greiðann og ýta undir hungur sinna manna í að vinna lokaleikina með því að mæta á sundskýlu í sjónvarpið ef allt fer vel. Liðið hefur síðan unnið alla leiki sína og nú er bara einn leikur eftir á móti Ohio.

Almar Orri hefur spilað alla þrjátíu leikina og er með 10,5 stig að meðaltali í leik sem er það fimmta mesta í liðinu. Hann hefur skorað 55 þrista og er með 38 prósent nýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna og áttatíu prósent nýtingu á vítalínunni.

Steele er á sínu fjórða ári með Miami-skólaliðið og liðið hefur undir hans stjórn hækkað sigurhlutfall sitt á hverju ári, fór úr 38 prósentum, í 47 prósent, í 73 prósent og er nú með 100 prósenta sigurhlutfall.


Tengdar fréttir

Unnu þrítugasta sigurinn í röð í nótt

Almar Orri Atlason og félagar hans í Miami-háskólaliðinu héldu ótrúlegri sigurgöngu sinni áfram í bandaríska háskólakörfuboltanum í nótt.

Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing

Almar Orri Atlason og félagar í Miami-háskólanum unnu 29. leikinn í röð í bandaríska háskólakörfuboltanum og eru komnir upp í nítjánda sæti á styrkleikalistanum. Þeir eru eina ósigraða liðið í landinu en íþróttastjórinn er allt annað en sáttur með umræðuna um liðið í bandarískum fjölmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×