Hún er eldflaug, hún er rúta, hún er kafbátur… Sindri Freysson skrifar 6. mars 2026 17:00 „Ég vildi að bækur væru eini farkosturinn“, sagði eldri sonur minn eitt sinn við mig, þá níu ára gamall. Ég er ansi oft hjartanlega sammála þessari einlægu ósk hans - ekki bara þegar ég sit fastur í umferðarteppu einhvers staðar á Miklubraut! En bók er að sjálfsögðu alltaf farartæki fyrir lesendur hennar; við stígum um borð í textann og hann flytur okkur inn í annan heim, aðra vídd, annan tíma, aðra vitund. Stundum er bók eldflaug, stundum rúta, stundum kafbátur, stundum skellinaðra, stundum einkabíll eða reiðhjól o.s.frv. – en í hvert skipti sem við förum í ferðalag með bók öðlumst við nýtt sjónarhorn á lífið og tilveruna. 2. Það er auðvelt að nota röksemdir um andlega velferð okkar til að hvetja til lestrar, því að lestur er ósjaldan kyrrlát leið til sjálfsskoðunar, könnunarleiðangur um innviði hugans. Bækur geta þannig verið leitarvélar sjálfsins; hjálpað lesandanum að uppgötva hliðar á sjálfum sér sem hefðu annars kannski aldrei komið í ljós, hliðar sem hann vissi jafnvel ekki um sjálfur. Meðan við lesum getum við klæðst ótal hlutverkum, skipt um ham að vild og mátað líf annarra persóna að vild – allt í öruggu rými bókarinnar, án hjálpar vafasamra efna eða ótta við að verða fyrir skaða á leiðinni. 3. Það er líka auðvelt að nota röksemdir um eflingu og næringu sköpunargáfunnar til að hvetja til bóklestrar – því að lestur felur í sér sköpun. Sá sem les er stöðugt að móta sínar eigin myndir, virkja hugarheim sinn og túlka eftir eigin höfði það sem augað nemur á blaðsíðunni eða eyrað nemur úr hljóðbókinni. Þegar er öllu er á botninn hvolft er staðreyndin vitaskuld sú að þó að höfundur bókar leggi fram hráefnið er það lesandinn sem mótar söguna úr efninu. Lesandinn er höfundur. 4. Það er sömuleiðis auðvelt að nota hagfræðilegar röksemdir til að hvetja til lestrar. Lestur snýst jú um þjóðarhag þar sem hann leggur ómælt til menntunar kynslóðanna, uppbyggingar menningar og miðlunar þekkingar og hugmynda. Lestur er þannig ómissandi stoð undir verðmætasköpun, fjárhagsleg lífsgæði og farsæla framtíð samfélagsins. 5. En í raun og veru er algjör óþarfi að tína til röksemdir um notagildi, gagn eða skynsemi til að hvetja til lestrar; bækur þurfa ekki að rökstyðja erindi sitt og tilgang. Góð bók veitir okkur ánægju, nautn og einstaka upplifun sem aldrei þarf að réttlæta að við sækjumst eftir. Góðar bækur gefa. Þær gera okkur ríkari. 6. Frjósamasti jarðvegur ástar á bóklestri er án efa heimilið. Lestur foreldranna mótar viðhorf barnsins til lestrar. Með því að kveikja bókaáhuga barns víkkarðu sjóndeildarhring þess, eflir skilning þess, dýpkar skynjun þess og styrkir og breikkar grundvöll þekkingar og færni á ótal sviðum. Við sem erum foreldrar þurfum því að vera fyrirmyndir í lestri. 7. Miðstöð íslenskra bókmennta hefur nú hrundið af stað lestrarhvatningu fyrir fullorðið fólk undir yfirskriftinni Bókaðu stund fyrir bók. Tilgangurinn er að minna á að lestur þarf hvorki að vera tímafrekur né flókinn heldur einföld og nærandi stund sem hefur jákvæð áhrif á vellíðan, einbeitingu og lífsgæði. Við hvetjum alla til að stíga sem oftast um borð í þann magnaða farkost sem bókin er svo sannarlega. Lesum. Sundur og saman. Lesum. Höfundur er rithöfundur og varaformaður stjórnar Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar