Jón Dagur skoraði í naumum bikarsigri gegn C-deildarliði Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. mars 2026 15:36 Jón Dagur hefur farið vel af stað hjá nýju félagi. brann Jón Dagur Þorsteinsson skoraði fyrir Brann í 2-3 framlengdum sigri á útivelli gegn Tromsdalen í sextán liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í fótbolta.
Lærisveinar Freys Alexanderssonar voru næstum því búnir að misstíga sig gegn C-deildarliðinu en sluppu naumlega með sigur eftir hörkubaráttu. Brann var mun betri aðilinn í fyrri hálfleiknum og tók forystuna á 22. mínútu með marki Felix Horn Myhre. Heimamenn í Tromsdalen þurftu að hafa sig alla við að verjast. Mörkin urðu hins vegar ekki fleiri í fyrri hálfleik því færanýting gestanna frá Björgvin var arfaslök. Bard Finne fór þar manna mest og klúðraði fjórum dauðafærum. Betur hefði mögulega farið ef Kristall Máni Ingason, Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson hefðu verið með, en þeir voru allir utan hóps. Eggert Aron var mættur aftur á æfingar í vikunni eftir meiðsli en spilaði ekki í dag. brann Brann refsaðist sín fyrir færanýtinguna snemma í seinni hálfleik þegar Tromsdalen jafnaði leikinn 1-1 með marki Didrik Hafstad. Skömmu síðar var hins vegar vítaspyrna dæmd fyrir Brann, sem Jón Dagur Þorsteinsson skoraði úr af öryggi. Þar var ekki öll sagan sögð því á lokamínútu venjulegs leiktíma skoraði Sondre Halvorsen 2-2 jöfnunarmark eftir fast leikatriði. Leikurinn fór í framlengingu, sem var mjög lífleg og heimamenn hefðu hæglega getað skorað, en það var Jacob Lungi Sörensen sem tryggði sigurinn fyrir Brann.
Norski boltinn Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Fleiri fréttir Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Stúkan: FH í miklum vandræðum Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Sjá meira