Opið bréf til umhverfisráðherra Ragnhildur Elín Skúladóttir og Jóhanna Malen Skúladóttir skrifa 9. mars 2026 13:32 Ungir umhverfissinnar setja stóra athugasemd við fyrirhugaðar breytingar umhverfisráðherra á raforkulögum og ummæli hans um að framkvæmdir til aukinnar orkuframleiðslu geti hafist áður en samkomulag við landeigendur hafi náðst eða eignarnám farið fram. Á Íslandi er hlutfall endurnýjanlegrar orku í heildarnotkun 89,7% (Hagsstofa Íslands, 2025). Engu að síður hefur öll orkuframleiðsla, einnig endurnýjanleg, ýmis áhrif á bæði umhverfi og samfélag. Þar af leiðandi er mikilvægt að ákvarðanataka og áætlanir séu vel ígrundaðar og fari eftir lögum og reglum. Sé þörf á að fara í frekari framkvæmdir til orkuöflunar liggur það beint við að það sé gert í góðu samstarfi við íbúa á svæðinu og landeigendur þá sérstaklega. Þegar kemur að samfélagslegum þáttum og orkuframleiðslu hafa ýmsar rannsóknir sýnt fram á mikilvægi og kosti þess að heimafólk taki virkan þátt í ákvarðanatöku í kringum framkvæmdir og uppbyggingu á orkuinnviðum. Orkufyrirtækjum og yfirvöldum ber að hlusta og taka til greina viðhorf samfélagssins á þeim svæðum þar sem eru fyrirhugaðar orkuframkvæmdir. Heimafólk hefur mikla þekkingu og tengingu við sitt svæði, sem yfirvöld og fyrirtæki hafa ekki. Athugasemdir og skoðanir heimafólks eru því einstaklega mikilvægar til að auðlindum og landsvæði sé stjórnað á sem sanngjarnastan máta og þjóni öllum aðkomandi aðilum vel. Gott og heilbrigt samstarf og samtal við heimafólk leiðir til betri lausna í orkumálum þar sem lýðræði og eignaréttur landeigenda gildir. Loftslagsbreytingar eru yfirvofandi og vissulega þarf að skipta út óendurnýjanlegum orkugjöfum líkt og olíu og gasi fyrir endurnýjanlega orkugjafa. Engu að síður skiptir gríðarlega miklu máli að endurnýjanleg orkuframleiðsla fari fram á sem umhverfissvænasta hátt og kostur er á og á svæðum þar sem rask hefur hve minnst áhrif. Tilllögur að nýjum orkukostum fara í gegnum ákveðin ferli þar sem allir þessir þættir eru vegnir og metnir. Ef á að hraða á þessum ferlum er hætta á að mikilvæg atriði séu ekki tekin með í útreikninginn. Endurnýjanleg orkuframleiðsla sem brýtur í bága við náttúruvernd og samfélagslegt lýðræði getur ekki talist sjálfbær. Orkuframleiðsla verður að taka tillit til allra þessara þátta. Að keppast um að auka framboð raforku til að flýta fyrir orkuskiptum á kostnað umhverfisins og réttinda landeigenda fer þvert gegn almennri skynsemi og skortir verulega langtímasýn. Það er óhugnaleg þróun að umhverfisráðherra telji að eignarétt landeigenda eigi ekki að virða og að eignarnámsbætur séu besta lausnin. Ef lýðræðislegur eignarréttur er tekinn í burtu er líklegt að ágreiningar muni aðeins færast í aukana en ekki öfugt. Við viljum minna ráðherra á að sem sitjandi umhverfisráðherra er það hans hlutverk að vernda umhverfið, meðal annars þegar kemur að orkumálum. Þessi hagsmunaárekstur innan ráðuneytisins verður því miður aldrei til þess fallinn að málefnum umhverfisins verði sinnt af heilum hug. Ungir umhverfissinnar hvetja Jóhann Pál Jóhannsson til að endurhugsa áætlanir sínar um breytingar á raforkulögum. Ragnhildur Elín Skúladóttir, meðlimur í náttúruverndarnefnd Ungra umhverfissinna og ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu Þjóðunum á sviði sjálfbærrar þróunar og Jóhanna Malen Skúladóttir, samskiptafulltrúi Ungra umhverfissinna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar