Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar 26. október 2026 07:02 Hefur þú einhvern tíma brugðist óvenju sterkt við einhverju sem önnur manneskja sagði eða gerði? Kannski var það saklaus athugasemd, ákveðinn raddblær eða skilaboð sem var ekki svarað. Skyndilega finnurðu fyrir höfnun, reiði eða sorg sem virðist miklu stærri en tilefnið. En hvað ef viðbrögðin snúast ekki eingöngu um það sem gerðist, heldur líka um eitthvað sem gerðist fyrir löngu? Við berum öll með okkur sögu. Reynsla okkar, sérstaklega úr nánum tengslum, mótar hvernig við skynjum okkur sjálf og annað fólk. John Bowlby, upphafsmaður tengslakenningarinnar, lýsti því hvernig fyrstu tengsl okkar geta mótað innri hugmyndir um eigið virði, öryggi og það hvort hægt sé að treysta öðrum. Rannsóknir á tengslamynstrum fullorðinna hafa síðan sýnt hvernig þessar hugmyndir geta haft áhrif á tilfinningastjórnun og viðbrögð í nánum samböndum. Sá sem hefur upplifað höfnun getur orðið sérstaklega næmur fyrir skorti á tilfinningalegri nánd. Sá sem hefur þurft að berjast fyrir viðurkenningu getur upplifað gagnrýni sem staðfestingu á eigin vanmætti. Og sá sem hefur alist upp við óöryggi getur túlkað ágreining sem ógn við sambandið. Hugræn kenning Aarons Becks hjálpar okkur að skilja þetta enn betur. Við bregðumst ekki aðeins við atburðum heldur einnig þeirri merkingu sem við leggjum í þá. Djúpstæð kjarnaviðhorf, svo sem „ég er ekki nógu góð“ eða „fólk yfirgefur mig“, geta haft áhrif á hvernig við túlkum jafnvel hversdagsleg samskipti. Tilfinningar okkar eru því raunverulegar, en túlkun okkar á því hvað olli þeim er ekki endilega alltaf rétt staðsett. Þetta er mikilvægur greinarmunur. Við getum upplifað höfnun án þess að okkur hafi í raun verið hafnað. Við getum fundið fyrir vanvirðingu án þess að ætlun hinnar manneskjunnar hafi verið að sýna okkur vanvirðingu. Við segjum gjarnan að aðrir „ýti á takkana okkar“. En höfum við einhvern tíma velt því fyrir okkur hvers vegna þessir takkar eru þarna eða hver á takkana? Þegar einhver vekur hjá okkur sársaukafullar tilfinningar beinist athyglin gjarnan að viðkomandi. Við viljum að hann breyti hegðun sinni, sýni meiri skilning eða hætti að gera það sem veldur okkur vanlíðan. Við getum jafnvel eytt árum í að reyna að breyta maka, foreldrum eða öðrum nákomnum í þeirri von að okkur muni loksins líða betur. En hvað ef við erum ómeðvitað að ætlast til þess að aðrir græði sár sem þeir ollu ekki? Þegar við gerum aðra ábyrga fyrir eigin tilfinningalegu öryggi verðum við háð því að þeir hegði sér á ákveðinn hátt. Við þurfum stöðuga staðfestingu, skilning eða viðurkenningu til að finna fyrir ró. En jafnvel þótt við fáum það sem við biðjum um er ekki víst að gamla sárið grói. Það getur einfaldlega fundið sér nýja kveikju. Í sálfræðimeðferð er meðal annars unnið með að greina þessi mynstur, skilja uppruna þeirra og þróa nýjar leiðir til að bregðast við. Fyrsta skrefið getur verið að staldra við og spyrja: Hvers vegna særir þetta mig svona mikið? Hvaða merkingu legg ég í hegðun hinnar manneskjunnar? Kannast ég við þessa tilfinningu úr eigin sögu? Þar getur raunveruleg sjálfsvinna hafist. Auðvitað ber engum að umbera vanvirðingu, ofbeldi eða ítrekuð brot á eigin mörkum. Aðrir bera ábyrgð á sinni hegðun, rétt eins og við berum ábyrgð á okkar. Stundum er heilbrigðasta viðbragðið einmitt að setja mörk eða yfirgefa skaðlegar aðstæður. En við getum ekki alltaf ætlast til þess að aðrir lagfæri það sem lífið hefur sært í okkur. Stundum er manneskjan sem kveikir sársaukann ekki sú sem skapaði sárið. Hún er einfaldlega sú sem snerti það. Áskorunin er að læra að greina þar á milli. Og kannski er mikilvægasta upphafsspurningin ekki alltaf: Hvers vegna gerir þú mér þetta? Heldur: Hvað er það innra með mér sem þarfnast heilunar? Við getum ekki komið í veg fyrir að aðrir ýti á takkana okkar. En við getum lært að skilja hvers vegna þeir eru svona viðkvæmir og bregðast við í samræmi. Höfundur er sálfræðingur, hjúkrunarfræðingur og doktor í heilbrigðisvísindum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun