Vilja fresta og freista þess að komast á HM viku fyrir mót Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2026 14:46 Íraka dreymir um að komast á HM, eftir 40 ára bið. Getty/Mohamed Farag Írakar vonast til þess að komast inn á HM í fótbolta í sumar í fyrsta sinn í 40 ár en óöldin í Mið-Austurlöndum gerir þeim erfitt fyrir. Landsliðsþjálfarinn hefur beðið FIFA um frest.
Írak á að spila hreinan úrslitaleik í Monterrey í Mexíkó 31. mars, um síðasta lausa sætið á HM. Fyrst mætast Súrínam og Bólivía, og Írak mun svo spila við sigurliðið. Graham Arnold, landsliðsþjálfari Íraks, hefur nú beðið FIFA um að finna lausn svo að hægt verði að fresta leiknum, í ljósi stríðsátakanna sem brutust út eftir að Bandaríkin og Ísrael gerðu árás á Íran sem svarað hefur fyrir sig með árásum á nágrannaríki, þar á meðal Írak. Telur lausn sína líka hjálpa til vegna Írans Árásirnar hafa meðal annars haft í för með sér að lofthelgi í Írak mun verða lokuð fram til 1. apríl, eða degi eftir að Írak á að spila um HM-sætið. Arnold hefur því sent hálfgert neyðarkall til FIFA, í gegnum ástralska miðilinn AAP: „Vinsamlegast hjálpið okkur með þennan leik vegna þess að í augnablikinu eigum við erfitt með að koma leikmönnum frá Írak,“ sagði Arnold en meirihluti leikmanna hans spilar í deildinni í Írak. „Ef að FIFA frestar leiknum þá ættum við að hafa tíma til að undirbúa okkur almennilega. Látum Bólivíu og Súrínam mætast í þessum mánuði og við getum svo mætt sigurvegaranum viku fyrir HM, í Bandaríkjunum. Sigurliðið yrði eftir þar en tapliðið færi heim,“ sagði Arnold og bætti við að með þessu hefði FIFA líka meiri tíma til að ákveða sig varðandi þátttöku Írans á mótinu. „Ef að Íran dregur sig úr keppni og við förum beint á HM þá hefðu Sameinuðu arabísku furstadæmin, sem við slógum út, tíma til að undirbúa sig fyrir leik við Bólivíu eða Súrínam,“ sagði Arnold.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira