„Fannst tilvalið að vera með í þessu“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 11. mars 2026 11:02 Sigurður Jefferson Guarino stefnir á að vera í heimaliðinu á Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028. vísir / sigurjón Handboltamaðurinn Sigurður Jefferson, leikmaður HK, setur stefnuna á að spila fyrir landslið Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum í Los Angeles eftir tvö ár. Hann er nú þegar byrjaður að æfa með liðinu.
Faðir Sigurðar er frá Bandaríkjunum og Sigurður er fæddur þar í landi, því með ríkisborgararétt og bandarískt vegabréf. Hann setti sig svo sjálfur í samband við bandaríska handknattleikssambandið. „Það var einhvern tímann fyrir löngu sem ég sendi þeim tölvupóst fyrir yngri landsliðin. Fékk ekkert svar þá en svo fyrir einhverju einu og hálfu ári fékk ég loksins tölvupóst frá þeim og þeir buðu mér með í æfingaferð til Þýskalands,“ segir Sigurður í viðtali við Stefán Árna Pálsson. Sigurður hefur æft upp á síðkastið með bandaríska landsliðinu og ræktað þannig tengslin við föðurlandið. „Mig langaði svolítið að tengjast þessari hlið af mér aðeins meira. Ég er mjög stoltur af þessari hlið af mér og fannst tilvalið að vera með í þessu. Upplifa þetta.“ En hvernig eru Bandaríkjamenn í handbolta? „Þetta er svolítil blanda sko. Það eru mjög margir í þessu landsliði eins og ég, svona hálf bandarískir, og þeir spila víða um heiminn. Alveg frá Þýskalandi yfir til Noregs eða Spánar og sumir auðvitað í Bandaríkjunum. Þannig að þetta getur verið svolítil samblanda af mismunandi getustigum, en þetta er mjög skemmtilegur handbolti.“ Bandaríska landsliðið spilaði nýlega æfingaleik við TT Holstebro, liðið í dönsku úrvalsdeildinni sem Arnór Atlason þjálfar. Leikar enduðu 36-32 fyrir Holstebro eftir nokkuð jafnan leik framan af. „Fjögurra marka munur sem mér finnst ekkert mjög mikið sko,“ segir Sigurður um styrk bandaríska landsliðsins. Sigurður hefur verið leikmaður HK um árabil. Bandaríkin verða á heimavelli á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 2028 og þar stefnir Sigurður á að spila. „Klárlega. Ég held að það sé draumur allra íþróttamanna að geta kallað sig Ólympíufara. Þannig að það er klárlega eitthvað sem maður er að stefna að.“ Fjallað var um bandaríska landsliðsmanninn Sigurð Jefferson í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
Ólympíuleikar 2028 í Los Angeles Olís-deild karla HK Handbolti Bandaríkin Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira