Ópólitískur fróðleiksmoli um ESB Snorri Másson skrifar 11. mars 2026 18:31 Frá sama Vísindavef Háskóla Íslands og færði okkur hér um árið ópólitískan fróðleiksmola prófessors í lífupplýsingafræði, þar sem skorið var úr um það með miklum vísindum að kyn mannsins væru í rauninni fleiri en tvö, fáum við nú ópólitískan fróðleiksmola um íslenska tungu og ESB. Svar birtist 5. mars 2026 við spurningunni: „Hefur EES-aðild Íslands einhver áhrif á íslenska tungu og mundi eitthvað breytast ef við færum í ESB?“ og þar er höfundurinn enginn annar en Eiríkur Rögnvaldsson. Vissulega hefur opinber jákvæð afstaða Eiríks til ESB legið fyrir – bæði út frá meintum hagsmunum íslenskunnar og einnig öðrum þáttum – löngu áður en honum var falið að veita vísindalegt svar við þessari spurningu á vefinn. Þar sem þetta er hins vegar ópólitískur fróðleiksmoli byggir Eiríkur málflutning sinn vitaskuld ekki aðeins á sinni eigin persónulegu skoðun. Hann vitnar til annars íslensks fræðimanns, sem hefur einnig lagt faglegt mat á málið, Gauta Kristmannssonar. Vissulega vill svo til að Gauti kemst að sömu niðurstöðu og Eiríkur, að íslenskunni sé best borgið innan Evrópusambandsins. Við nánari athugun kemur að vísu á daginn að Gauti telur að í Evrópusambandsaðild Íslands geti einnig leynst lausnir við ýmsum öðrum fjölbreyttum og óvæntum áskorunum Íslendinga, samanber þessa fyrirsögn úr DV frá júlí 2024: „Gauti segir að ef illa fer í næstu eldgosum væri gott að vera í skjóli ESB og evrunnar“. Hinn hluti spurningarinnar á Vísindavefnum lýtur að áhrifum EES-aðildarinnar hingað til á íslenska tungu. Spyrjandinn mun hafa varpað öndinni léttar eftir lestur ópólitíska fróðleiksmolans, því að þar veitir Eiríkur Rögnvaldsson býsna hughreystandi svar: „Í raun hefur aðildin að EES þegar styrkt tunguna með starfsemi þýðingarmiðstöðvar utanríkisráðuneytisins þar sem stór hluti af lögum og reglum ESB er þýddur á íslensku.“ Eiríki virðist ekki hafa gefist rúm til að reifa önnur möguleg áhrif EES-samstarfsins á íslenska tungu, eins og þau sem hann rakti þó sjálfur í nýlegu viðtali við mbl.is undir fyrirsögninni: „Enska ráðandi eftir nokkra áratugi að óbreyttu“. Þar fjallaði Eiríkur um að slík ólánsstaða væri núna raunhæfur möguleiki í ljósi þess að um miðja öld verði helmingur vinnumarkaðarins að líkindum af erlendum uppruna. Auðvitað væri, svona þannig séð, hægt að víkja að þessum áhrifum EES á íslenska tungu en í svona stuttum ópólitískum fróðleiksmola þarf að forgangsraða efnisatriðum. Augljóslega vegur þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytisins töluvert þyngra. Eftir mikla umhugsun er niðurstaða Eiríks á Vísindavefnum því sú að góð rök hnígi að því að staða tungunnar myndi styrkjast verulega við aðild. Þar gildir einu þótt sjálf hugsjónin með Evrópusambandinu sé vissulega að efnahagslegur og pólitískur samruni ríkjanna vegi þyngra en sérstaða þjóðríkjanna og þótt vissulega sé allt eins líklegt að aðstreymi innflytjenda geti aukist enn hingað til lands án þess að við munum geta haft nokkuð um það að segja. Slíkar málalengingar flækjast bara fyrir í svona ópólitískum fróðleiksmola. Þótt ég vilji síst ganga of langt í lofgjörð minni um þessa áreiðanlegu upplýsingamiðlun Vísindavefsins hér við upphaf umræðunnar um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu, tel ég ekki úr vegi að hvetja vefinn til þess að hugleiða hvort ekki sé viðeigandi að hann votti efni sitt framvegis með sambærilegum gæðastimpli og Ríkisútvarpið tók nýverið upp á að veita sjálfu sér á vef sínum. Þar er nú fullyrt í lok hverrar greinar að miðillinn sé óháður hagsmunum stjórnmála, viðskipta, opinberra aðila og einkaaðila. Fréttaflutningur og dagskrárgerð byggi á trúverðugleika og óhlutdrægni. Þetta er traustvekjandi fyrirvari sem ætti vel við undir ópólitískum fróðleiksmolum frá háskólasamfélaginu. Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Snorri Másson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar