Fótbolti

Erfið veikindi Kötlu og bikar­draumurinn úti

Sindri Sverrisson skrifar
Katla Tryggvadóttir gat ekki verið með Fiorentina í dag vegna veikinda sinna.
Katla Tryggvadóttir gat ekki verið með Fiorentina í dag vegna veikinda sinna. Getty/Jari Pestelacci

Landsliðskonan Katla Tryggvadóttir er enn að jafna sig eftir erfið veikindi og gat ekki beitt sér með Fiorentina þegar liðið féll út í undanúrslitum ítalska bikarsins í fótbolta í kvöld, með 2-0 tapi gegn Juventus.

Fiorentina hafði slegið AC Milan út í 8-liða úrslitum en varð að sætta sig við tap í kvöld. Á morgun mætast Roma og Inter í hinum undanúrslitaleiknum.

Hlín Eiríksdóttir kom inn á sem varamaður í kvöld þegar hálftími var eftir, en staðan var þá þegar orðin 2-0 eftir mörk frá Chiara Beccari og Ana Capeta.

Hlín var að koma úr tveimur krefjandi leikjum við Spán og England í undankeppni HM en Katla missti óvænt af þeim leikjum eftir að hafa veikst.

Í samtali við Fótbolta.net kvaðst Katla hafa endað á spítala í Torrevieja, daginn eftir að landsliðið kom saman til æfinga á Spáni, og að um skæða bólgu og sýkingu nýra hefði verið að ræða. Hún endaði á að vera á spítala í heila viku og fékk svo að fara heim í nokkra daga áður en hún ferðaðist aftur til Flórens í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×