Kvaddi Chelsea með tárin í augunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2026 09:03 Guro Reiten hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Chelsea. @ChelseaFCW Norska landsliðskonan Guro Reiten klárar ekki síðasta hálfa árið sitt af samningi sínum við Chelsea heldur er á leið yfir Atlantshafið og í bandarísku deildina.
NWSL-meistararnir í Gotham FC tilkynntu á fimmtudag að þeir hefðu samið við norska miðjumanninn. Reiten fer til Gotham á lánssamningi til júlí, en þá átti samningur hennar við sexfalda Englandsmeistara Chelsea að renna út. Reiten hefur þegar skrifað undir við Gotham FC til loka NWSL-tímabilsins 2029. We’ve got Guro! ✍️In partnership with @Dove, #GothamFC has signed forward Guro Reiten from @ChelseaFCW She will join the club on loan through the conclusion of her contract and has agreed to a free agent deal through 2029 with the club. Welcome to NJ/NY, Guro! ⭐️⭐️Read more:… pic.twitter.com/fiG1HwT9R0— Gotham FC (@GothamFC) March 12, 2026 Reiten gengur til liðs við Gotham aðeins tveimur dögum fyrir fyrsta leik liðsins á NWSL-tímabilinu 2026. Reiten kvaddi Chelsea með tárin í augunum í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum félagsins. Ég var skíthrædd „Allt tekur enda og þetta er minn endir hér hjá Chelsea. Ég man enn þegar Emma [Hayes] hringdi í mig fyrir sex og hálfu ári og sannfærði mig um að ganga til liðs við félagið og ég var skíthrædd,“ sagði Guro Reiten. „Ég var hrædd um að ég væri ekki nógu góð, hrædd við að flytja frá fjölskyldunni minni, en ég vissi ekki að ég væri að eignast nýja fjölskyldu. Það hefur verið algjör heiður og forréttindi að bera merkið og vera fulltrúi ykkar,“ sagði Reiten. Guro Reiten has today completed a move to NWSL side Gotham FC.Everyone at Chelsea would like to sincerely thank Guro for her huge contributions to our success over the last six-and-a-half years, and we wish her well during the next chapter of her career. 💙 pic.twitter.com/SWJ7fcm1dx— Chelsea FC Women (@ChelseaFCW) March 12, 2026 Hún hefur tvisvar verið valin í lið ársins á Englandi, er með 21 mark í 108 leikjum fyrir Noreg og hefur spilað á síðustu tveimur heimsmeistaramótum. Þakklát fyrir tækifærið „Ég er virkilega spennt fyrir því að ganga til liðs við Gotham FC og þakklát fyrir tækifærið til að vera hluti af þessu félagi,“ sagði Reiten í yfirlýsingu. „Gotham hefur byggt upp eitthvað sérstakt á síðustu árum og það er greinilegur metnaður hér.“ „Ég hlakka til að leggja hart að mér, læra og gera allt sem ég get til að hjálpa liðinu að ná árangri,“ sagði Reiten. Hjá Chelsea skoraði Reiten 59 mörk og gaf 44 stoðsendingar í 207 leikjum í öllum keppnum. Hún hjálpaði Chelsea að vinna sex enska meistaratitla, fjóra bikarmeistaratitla og þrjá deildabikartitla á meðan hún spilaði með félaginu. Hún hjálpaði Chelsea einnig að komast í úrslitaleik Meistaradeildar kvenna árið 2021, þar sem liðið tapaði fyrir Barcelona.
Enska augnablikið Chelsea FC Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fleiri fréttir Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjá meira