Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Kjartan Kjartansson skrifar 13. mars 2026 08:42 Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir það hreint út í viðtali að Bandaríkin vinni markvisst gegn Evrópu. Vísir/EPA Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins telur að núverandi Bandaríkjastjórn vilji sundra og veikja Evrópu. Evrópuríki ættu að bregðast við saman í stað þess að reyna að eiga við Bandaríkin hvert og eitt.
Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, segir Financial Times að aðferðir Bandaríkjastjórnar líkist þeim sem andstæðingar Evrópusambandsins noti. „Það sem mér finnst mikilvægt að allir skilji er að Bandaríkin hafa verið alveg skýr með það að þau vilja sundra Evrópu. Þeim líkar ekki við Evrópusambandið,“ segir Kallas sem var fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Eistlands á sínum tíma. Ríkisstjórn Donalds Trump hefur lagt tolla á Evrópuríki og oft og tíðum hefur hún tekið upp talpunkta stjórnvalda í Kreml varðandi innrás Rússa í Úkraínu. Þá hefur lengi legið í loftinu að Trump gæti dregið Bandaríkin út úr Atlantshafsbandalaginu. Ofan á þetta bætist hugmyndafræðileg andúð Trump og stjórnar hans á Evrópusambandinu og meginstraumsflokkum í mörgum Evrópuríkjum. Í nýrri þjóðaröryggisáætlun Bandaríkjastjórnar í vetur var „vestræn siðmenning“ sögð á barmi hruns í Evrópu vegna fjölgunar innflytjenda af öðrum uppruna en evrópskum. Bandarískum erinderkum hefur einnig orðið tíðrætt um stöðu tjáningarfrelsis sem þeir telja slæma í Evrópu, fyrst og fremst vegna tilrauna Evrópusambandsins til þess að koma böndum á upplýsinaóreiðu og hatursorðræðu á samfélagsmiðlum. Eigendur helstu samfélagsmiðla heims eru bandarískir. Standa jafnfætis ef Evrópa stendur saman Kallas hvatti Evrópuríki til þess að standa saman gegn Bandaríkjunum í viðtalinu. „Viðbrögð okkar ættu ekki að vera að semja tvíhliða við Trump heldur að gera það saman. Þeim líkar það ekki þegar við stöndum saman vegna þess að þá stöndum við jafnfætis,“ sagði utanríkismálastjórinn.
Evrópusambandið Bandaríkin Donald Trump Utanríkismál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira