2000 íbúðir í hönnun og byggingu á Ártúnshöfða Tinna Stefánsdóttir skrifar 17. mars 2026 14:30 Reykjavík stendur frammi fyrir vaxandi húsnæðisþörf á næstu árum en til að mæta þeirri þörf eru margar leiðir farnar. Ein þeirra er að þróa nýtt hverfi innan borgarmarkanna. Ártúnshöfði er eitt stærsta þróunarsvæði borgarinnar þar sem verið er að breyta iðnaðarhverfi í lifandi borgarhverfi. Áherslan með uppbyggingunni á Ártúnshöfða er að skapa lifandi og blandað hverfi þar sem íbúðir, vinnustaðir, þjónusta og útisvæði eru í góðum tengslum en þar munu gönguleiðir, hjólatengingar og samgöngur innan hverfis gegna lykilhlutverki enda svæðið mjög miðsvæðis í borginni. Uppbygging á svæðinu hófst árið 2023 og fyrstu íbúar fluttu inn á síðasta ári. Nýja hverfið á Ártúnshöfða verður mikilvægur borgarhluti í Reykjavík á komandi árum, með góðum samgöngum og stutt í græn svæði svo sem Elliðaárdalinn. Á næstu árum verður uppbygging hröð í hverfinu og áætlanir gera ráð fyrir að íbúafjöldi verði um sjö þúsund manns á næstu fimm árum eftir því sem uppbyggingin heldur áfram í áföngum. Þróunin er komin vel af stað og hverfið er smám saman að taka á sig mynd. Samgöngur munu gegna lykilhlutverki í þróun þessa borgarhluta. Borgarlínan mun liggja um Ártúnshöfða og uppbygging hennar er áætluð að hefjast í sumar. Með tilkomu hennar munu tengingar við aðra hluta borgarinnar batna verulega og ný tækifæri skapast til að ferðast á milli hverfa. Þegar horft er til lengri tíma er framtíðarsýnin enn stærri, Ártúnshöfði er skipulagður sem þéttur og blandaður borgarhluti þar sem íbúðir, atvinnustarfsemi, þjónusta og almenningsrými mynda heildstæða byggð. Þegar uppbyggingunni verður að fullu lokið gætu þar búið allt að tuttugu þúsund manns. Höfundur er verkfræðingur og teymisstjóri uppbyggingasvæða hjá Reykjavíkurborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húsnæðismál Reykjavík Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Skoðun Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Reykjavík stendur frammi fyrir vaxandi húsnæðisþörf á næstu árum en til að mæta þeirri þörf eru margar leiðir farnar. Ein þeirra er að þróa nýtt hverfi innan borgarmarkanna. Ártúnshöfði er eitt stærsta þróunarsvæði borgarinnar þar sem verið er að breyta iðnaðarhverfi í lifandi borgarhverfi. Áherslan með uppbyggingunni á Ártúnshöfða er að skapa lifandi og blandað hverfi þar sem íbúðir, vinnustaðir, þjónusta og útisvæði eru í góðum tengslum en þar munu gönguleiðir, hjólatengingar og samgöngur innan hverfis gegna lykilhlutverki enda svæðið mjög miðsvæðis í borginni. Uppbygging á svæðinu hófst árið 2023 og fyrstu íbúar fluttu inn á síðasta ári. Nýja hverfið á Ártúnshöfða verður mikilvægur borgarhluti í Reykjavík á komandi árum, með góðum samgöngum og stutt í græn svæði svo sem Elliðaárdalinn. Á næstu árum verður uppbygging hröð í hverfinu og áætlanir gera ráð fyrir að íbúafjöldi verði um sjö þúsund manns á næstu fimm árum eftir því sem uppbyggingin heldur áfram í áföngum. Þróunin er komin vel af stað og hverfið er smám saman að taka á sig mynd. Samgöngur munu gegna lykilhlutverki í þróun þessa borgarhluta. Borgarlínan mun liggja um Ártúnshöfða og uppbygging hennar er áætluð að hefjast í sumar. Með tilkomu hennar munu tengingar við aðra hluta borgarinnar batna verulega og ný tækifæri skapast til að ferðast á milli hverfa. Þegar horft er til lengri tíma er framtíðarsýnin enn stærri, Ártúnshöfði er skipulagður sem þéttur og blandaður borgarhluti þar sem íbúðir, atvinnustarfsemi, þjónusta og almenningsrými mynda heildstæða byggð. Þegar uppbyggingunni verður að fullu lokið gætu þar búið allt að tuttugu þúsund manns. Höfundur er verkfræðingur og teymisstjóri uppbyggingasvæða hjá Reykjavíkurborg.
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun