Staða mæðra á íslenskum vinnumarkaði: Kerfislægt mynstur sem kallar á viðbrögð Sigrún Brynjarsdóttir skrifar 17. mars 2026 16:03 Íslenskur vinnumarkaður hefur tekið miklum breytingum í jafnréttisátt undanfarna áratugi. Konur á vinnumarkaði eru bæði fjölmennari og menntaðri en nokkru sinni fyrr og þátttaka þeirra í atvinnulífinu er með því hæsta sem þekkist í heiminum. Samkvæmt nýjustu gögnum eru konur nú 47% allra starfandi og um 78% kvenna á vinnualdri taka þátt á vinnumarkaði. Þrátt fyrir þessa miklu þátttöku og góða menntun, sem ætti að skila auknum tækifærum og betri launakjörum, heldur kynbundinn munur í starfsvali, framgangi og tekjuþróun áfram að birtast. Kynjaðra áhrifa gætir jafnt þegar konur stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og þegar líður á starfsferilinn. Áhrifin koma hvað skýrast í ljós í kringum barneignir Greining BHM bendir til að tekju- og starfsferilsmismunur kynja myndist snemma og aukist jafnt og þétt yfir starfsævina. Sérstaklega virðist fyrsta barneign marka afgerandi þáttaskil. Atvinnuþátttaka kvenna minnkar um 20% við fæðingu fyrsta barns og nær ekki sama stigi tíu árum síðar. Á sama tíma halda karlar áfram í nánast óbreyttu starfshlutfalli. Munurinn skýrist umfram annað af því að umönnun og ólaunuð heimilisstörf lenda að miklu leyti á konum. Rannsóknir, meðal annars frá Svíþjóð, sýna áhugaverða niðurstöðu, sem ætti að verða okkur fyrirmynd; þegar laun kvenna hækka og nálgast laun maka þeirra verður verkaskipting á heimilinu jafnari. Efnahagsleg staða og ábyrgð haldast sem sagt í hendur. Í þessu samhengi er áhugavert að skoða muninn á starfshlutfalli kynjanna. Um þriðjungur starfandi kvenna er í hlutastarfi en aðeins 16% karla. Færri vinnustundir þýða minni tekjur, minni möguleika á framgangi og að lokum lægri lífeyrisréttindi á efri árum. Þessi áhrif ná langt út fyrir fyrstu árin eftir barneignirog fylgja konum stóran hluta starfsævinnar. Hvar eru konur og hvaða störf meta kerfin okkar? Konur starfa að stórum hluta í opinbera geiranum og í greinum þar sem menntunarstig er hátt en framleiðnivöxtur hefur verið hægur, til dæmis í heilbrigðis-, mennta- og umönnunarstörfum. Þar eru konur í yfir 70% starfa. Þessi störf eru undirstaða velferðarsamfélags okkar en hafa lengi verið vanmetin, og endurspeglast það í launum og öðrum kjörum. Þrátt fyrir að konur séu að jafnaði menntaðri en karlar skilar menntunin þeim ekki sambærilegum ávinningi á vinnumarkaði. Þetta er því kerfislægt vandamál, ekki afleiðing einstaklingsbundinna ákvarðana. Lýðfræðilegar breytingar og mannekla Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir því að þjóðin er að eldast á sama tíma og gætir aukinnar manneklu í grunnkerfum samfélagsins. Í greiningu BHM er bent á að konur manni stóran hluta heilbrigðis- og menntakerfisins, starfsgreinar sem þegar glíma við mönnunarvanda. Aðstæður sem draga úr atvinnuþátttöku kvenna hafa því ekki aðeins áhrif á rétt þeirra til launa og sjálfstæðis heldur grafa þær undan velferðarkerfinu. Fæðingartíðni hér á landi hefur aldrei verið lægri, aðeins 1,56 börn á konu árið 2024. Rannsóknir benda til að ótrygg staða ungs fólks á húsnæðis- og vinnumarkaði og áhyggjur af áhrifum barneigna á starfsferil vegi þungt þegar fólk ákveður hvort og hvenær það eignast börn. Þegar barneignir hafa sýnileg neikvæð áhrif á tekjur kvenna um ókomin ár er eðlilegt að fólk staldri við. Hvað þarf til að breyta þessu? Bent hefur verið á að opinber stefnumótun í málefnum fjölskyldna, allt frá fæðingarorlofi til skipulags vinnustaða og kjarasamninga, móti þann ramma sem foreldrar lifa innan. Þegar mæður þurfa að laga sig að vinnumarkaðnum en vinnumarkaðurinn aðlagar sig ekki að fjölskyldulífinu verður niðurstaðan kerfislæg mismunun. Til að tryggja jafnrétti og jafna möguleika kynjanna á vinnumarkaði til framtíðar þarf: Sterkt fæðingarorlofskerfi sem stuðlar að jafnræði í umönnun, Öflug og aðgengileg leikskóla- og dagvistunarúrræði, Sveigjanlegt vinnuumhverfi sem hentar báðum foreldrum, Endurmat á virði hefðbundinna kvennastarfa, Aðgerðir til að draga úr ómeðvituðum hindrunum sem bitna helst á konum. Þrátt fyrir miklar framfarir á Íslandi er ljóst að staða kvenna og sérstaklega mæðra á vinnumarkaði er enn ekki á jafnræðisgrundvelli. Skipulag kerfa og hvatar í hagkerfinu leiða til þess að tekjutap og skerðingar lenda að stærstum hluta á konum þegar börn koma inn í myndina, sem dregur úr fullri þátttöku þeirra og hefur varanleg áhrif á efnahagslegt sjálfstæði. Ef við viljum tryggja réttlátt og raunverulega fjölskylduvænt samfélag til framtíðar dugar ekki að horfa einungis á þann árangur sem þegar hefur náðst. Við þurfum að halda áfram að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði með markvissum aðgerðum. Höfundur er hagfræðingur hjá BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður Jafnréttismál Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar