Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2026 20:24 Goncalo Inacio fagnar hér fyrsta marki Sporting í leiknum í Portúgal í kvöld. Getty/Gualter Fatia Bodö/Glimt er úr leik í Meistaradeildinni þrátt fyrir að hafa mætt með þriggja marka forskot í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum. Sporting yfirspilaði norska liðið, vann 5-0 og þar með 5-3 samanlagt.
Sporting var búið að vinna upp mörkin þrjú í venjulegum leiktíma en portúgalska liðið þurfti framlengingu til að ná inn markinu sem skilaði liðinu í átta liða úrslitin. Á endanum urðu mörkin fimm.Sporting-menn voru í stórsókn frá fyrstu mínútu og það var allt annar bragur yfir þessum leik og í hinum sem á undan fóru í þessu mikla ævintýri norska liðsins.Gonçalo Inácio braut ísinn með því að skalla inn hornspyrnu Trincao á 34. mínútu. Sporting fékk fimm dauðafæri í fyrri hálfleiknum en skoraði bara þetta eina mark.Það var hins vegar ljóst á öllu að norska liðið héldi þessa orrahríð varla út mikið lengur. Bodö náði reyndar að búa sér eitt hættulegt færi þar sem skalli Sondre Brunstad Fet endaði tvisvar í markslánni en inn fór hann ekki.Staðan var því enn 1-0 í hálfleik en eftir sextán mínútna leik í þeim síðari kom Pote Sporting í 2-0. Það var því rúmur hálftími eftir og portúgalska liðið vantaði aðeins eitt mark til að jafna einvígið.Markið kom eftir 78. mínútna leik þegar Sporting fékk vítaspyrnu með hjálp myndbandsdómara. Luis Suárez fór á vítapunktinn, skoraði af miklu öryggi og kom Sporting í 3-0.Staðan var því orðin jöfn í einvíginu og Portúgalarnir höfðu nægan tíma til að kóróna endurkomu sína. Það tókst þó ekki og því þurfti að framlengja leikinn.Sporting var ekki lengi að skora í framlengingunni þegar Maxi Araújo skoraði eftir undirbúning Trincao strax á annarri mínútu framlengingarinnar.Norðmennirnir þurftu því að snúa vörn í sókn og sækja mark. Það tókst þeim ekki og stuðningsmenn Sporting munu syngja um þetta kvöld lengi. Til að kóróna kvöldið fyrir Portúgalana skoraði Rafael Ferreira Nel fimmta markið í uppbótartímanum og norska martröðin var um leið fullkomnuð.Sporting mætir annaðhvort Arsenal eða Bayer Leverkusen í átta liða úrslitunum.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Sjá meira