Stórslys á Suðurlandsbraut Lárus Bl. Sigurðsson skrifar 18. mars 2026 07:47 Borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík er nú smátt og smátt að upplýsa borgarbúa um hvað borgarlínuverkefnið snýst í raun og veru um. Þrenging að einkabílnum. Það að ætla að fækka akreinum fyrir bíla á Suðurlandsbraut úr tveimur í eina, eins og nú liggur fyrir í deiliskipulagi, er verulegt áhyggjuefni. Það er í raun ótrúlegt að þetta sé komið svona langt. Umferðartafir á Suðurlandsbraut eru nú þegar verulegar og þessi fækkun á akbrautum mun að sjálfsögðu gera þær enn verri. Þá er einnig verið að fækka bílastæðum, þrengja að atvinnustarfsemi á svæðinu, auka umferðarþunga í nærliggjandi hverfum og þá er fyrirliggjandi óvissa um tafir neyðarbíla og annara viðbragðsaðila. Lausnin að bættri umferð í Reykjavík felst ekki í núverandi hugmyndum um borgarlínu. Fækkun akreina á Suðurlandsbraut er vond hugmynd. Það er vel hægt að bæta almenningssamgöngur án þess að fækka akreinum fyrir bíla. Ef við horfum á strætó (sem u.þ.b. 4% íbúa nota) er hægt að bæta hann með miklu lægri tilkostnaði. Við þurfum að auka við sérakreinar, aukna tíðni, einblína á minni og hagkvæmari vagna og snjallvæða umferðarljósin. Þá eru framundan, og í raun til staðar, miklar tækniframfarir í samgöngumálum sem við þurfum að horfa til. Með því að hætta við borgarlínu, en bæta strætó með skynsamlegum hætti í staðinn, þá sparast yfir 100 milljarðar og þjónustumunurinn er nánast enginn. Þetta kemur fram í mjög góðri skýrslu um málið „Valkostir við borgarlínu - Hagkvæmni einstakra samgönguframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu“ frá SFA (Samgöngur fyrir alla) og RSE (Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnhagsmál) sem kom út í byrjun ársins. Ásamt því að tryggja betri Strætó þarf að leggja áherslu á að greiða fyrir bílaumferð með því að ráðast í þjóðhagslega hagkvæmar framkvæmdir á umferðamannvirkjum, sem hafa setið á hakanum hjá borgaryfirvöldum í áratugi. Við í Miðflokknum viljum halda áfram uppbyggingu á hjóla og göngustígum, en jafnframt þarf að viðhalda göngustígum í hverfunum. Þar hefur borgin ekki sinnt eðlilegu viðhaldi. Miðflokkurinn vill bættar almenningssamgöngur en við viljum einnig bæta umferðarflæði bílaumferðar, ekki skerða það. Þessi markmið geta og eiga að vinna saman. Miðflokkurinn vill betri umferð, fyrir alla. Það er stórslys í uppsiglingu á Suðurlandsbraut og á fleiri stöðum í Reykjavík, þar sem þrengja á að bílaumferð og fækka bílastæðum. Það er sem betur fer ennþá hægt að koma í veg fyrir það. Höfundur er í þriðja sæti Miðflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Lárus Blöndal Sigurðsson Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira