Kópavogur tekur forystu í menningarmálum Soffía Karlsdóttir skrifar 18. mars 2026 11:15 „Menningarhúsin í Kópavogi hafa síðustu ár sýnt að þegar aðgengi, dagskrá og gæði haldast í hendur, bregst samfélagið við” Á sama tíma og Hagstofa Íslands greinir frá þeirri miklu áskorun sem menningargeirinn og hinar skapandi greinar standa frammi fyrir með ört fækkandi stöðugildum, eða um 19,4% samdrætti á síðasta áratug, berast fagnaðarfréttir úr Kópavogi sem boða stórsókn í uppbyggingu menningarinnviða. Á vordögum 2027 verður opnuð ný 900 fermetra menningarmiðstöð í Smáralind og árið 2029 verður nýr menningarkjarni opnaður í Kórnum. Báðar menningarmiðstöðvarnar verða hrein viðbót við þá menningarstarfsemi sem nú er til staðar í bæjarfélaginu. Ákvörðunin um hina nýju menningarkjarna er skýrt merki um framsækni og langtímahugsun en byggðin austan Hamraborgar hefur farið ört vaxandi undanfarna áratugi og á enn eftir að stækka. Með uppbyggingunni verður aðgengi að menningu, listum og bókmenntum stóraukið og fært nærri heimilum bæjarbúa. Öflugur menningarkjarni í Hamraborginni Það er kunnara en frá þurfi að segja að Kópavogsbær hefur um langt skeið verið leiðandi meðal sveitarfélaga í menningarmálum. Allt frá því að Gerðarsafn var opnað árið 1994, fyrst menningarhúsa bæjarins við Hamraborg, hefur hvert menningarhúsið af öðru risið í bænum af miklum myndarskap. Bókasafn á þremur hæðum og Náttúrusafn voru tekin í notkun árið 2002 í nýrri, sérhannaðri byggingu sem einnig stendur á Hamraborgarsvæðinu. Í millitíðinni, eða árið 1999, var Salurinn einnig opnaður á sama svæði, en hann er fyrsti sérhannaði tónleikasalur landsins og annálaður fyrir einstakan hljómburð. Óvíða er að finna jafn öflugan kjarna menningarstofnana eins og þann sem stendur við Hamraborgina. Mikil tækifæri felast í nálægð menningarhúsanna, sameiginlegir dagskrárviðburðir einkenna starfsemi þeirra, þótt styrkur húsanna felist alltaf fyrst og fremst í sérstöðu þeirra. Tvær nýjar menningarmiðstöðvar Umræðan um skort á bókasafnsþjónustu í austurhluta bæjarins er ekki ný af nálinni en um árabil hafa bæjaryfirvöld leitað leiða til að mæta þeirri þörf. Það var því mikið fagnaðarefni þegar ljóst var að Kópavogsbæ stæði til boða að koma fyrir menningarmiðstöð í 900 fermetra rými í Smáralind, sem gæti mætt óskum bæjarbúa um aukið aðgengi að menningu. Stefnt er að því að hanna menningarmiðstöðina af sama myndarbrag og aðrar menningarstofnanir bæjarins í samstarfi við fasteignafélagið Heima, sem eru rekstraraðilar Smáralindar. Í menningarmiðstöðinni í Smáralind verður megináhersla lögð á rekstur bókasafns með hlýlegu andrúmslofti og opnu aðgengi í anda þeirra glæsilegu bókasafna sem risið hafa á Norðurlöndum undanfarin ár. Kópavogsbær rekur nú auk aðalsafnsins eitt bókasafnsútibú, sem opið er hluta dags í Lindaskóla, en með opnuninni í Smáralind verður því útibúi lokað, en skólabókasafnið mun halda áfram sinni starfsemi. Kjarnastarfsemi Bókasafns Kópavogs verður áfram rekin í aðalsafninu við Hamraborg, en auk útibúsins í Smáralind verður þriðja útibú bókasafnsins opnað árið 2029 í nýjum menningarkjarna í Kórnum, þar sem nú er rekin íþróttamiðstöð og grunnskóli á unglingastigi. Íbúar hafa kallað eftir bókasafni og virkri menningarstarfsemi í efri byggðum, en ljóst er að með uppbyggingu nýrra hverfa í Vatnsendahvarfi og Vatnsendahlíð verður þörfin fyrir greiðara aðgengi að menningu í efri byggðum enn brýnni. Tvöfalt fleiri gestir og aukning í útlánum bóka Frá árinu 2021 til 2025 hefur gestafjöldi Bókasafns Kópavogs aukist um tæplega 95% og farið úr 114.000 gestum í 221.000 gesti. Þessi gríðarlega aukning staðfestir mikilvægi þess að mæta aukinni þörf fyrir aðgengi að menningu og sér í lagi bókasafnsþjónustu. Til að mæta þessari aukningu gesta setti Bókasafn Kópavogs, fyrst bókasafna á landinu, upp sjálfsafgreiðslubókakassa í Vallarkór fyrir nokkrum árum og hefur það margsannað gildi sitt og notkun þess farið langt fram úr væntingum. Á undanförnum árum hafa bókasöfn hér á landi og víðar horfst í augu við þá döpru staðreynd að þrátt fyrir auknar vinsældir bókasafna almennt hefur útlán á bókum farið hratt niður á við. Það var því afar ánægjulegt að sjá greinilegan viðsnúning á útlánatölum Bókasafns Kópavogs milli áranna 2024 og 2025, en aukningin nam 8,3%. Einfalt væri að draga þá ályktun að aukin útlán og fjölgun gesta héldust í hendur, en þar sem sú fylgni hefur ekki verið augljós undanfarin ár, er freistandi að lesa úr tölunum aukinn áhuga á bóklestri. En hvort svo er mun tíminn einn leiða í ljós. Menningarviðburðir færast í önnur hverfi Menningarhúsin í Kópavogi hafa síðustu ár sýnt að þegar aðgengi, dagskrá og gæði haldast í hendur, bregst samfélagið við. Heildarfjöldi gesta í menningarhúsunum hefur vaxið gríðarlega undanfarin ár en 21% aukning var á milli áranna 2024 og 2025 þegar samtals 424.000 gestir sóttu húsin heim. Frá árinu 2022 til 2025 hafa gestaheimsóknir í menningarhúsin aukist um 66% og að sama skapi hefur fjölbreytileiki og framboð á viðburðum náð nýjum hæðum. Árið 2025 skipulögðu menningarhúsin tæplega 900 viðburði, þar af 480 á vegum Bókasafns Kópavogs. Þessi mikla viðburða- og verkefnareynsla starfsfólks menningarhúsanna er dýrmætur grunnur fyrir uppbyggingu nýrra menningarmiðstöðva, þar sem stefnt er að fjölbreyttri, vandaðri og metnaðarfullri menningardagskrá. Bæjarfélag sem vill vaxa og skara fram úr Tækifærin sem felast í mótun og uppbyggingu nýrra menningarmiðstöðva í Kópavogi eru fjölmörg og verður þeim mætt af framsýni og hugmyndaauðgi þeirra sem starfa á vettvangi menningarmála í bæjarfélaginu. Ávinningurinn af þessari innviðauppbyggingu fyrir samfélagið allt er margvíslegur og mun styrkja tengsl milli hverfa og kynslóða, efla mannlíf og stuðla að meiri samheldni og auðga samfélagið. Með framtakinu sýnir Kópavogsbær að hann er enn á ný í fararbroddi þegar kemur að uppbyggingu menningarinnviða og sýnir í verki skilning á mikilvægi öflugs menningarlífs í samfélagi sem vill vaxa og skara fram úr. Um leið skapast nýjar forsendur til að þróa menningarstarfsemi bæjarins með framsæknum hætti og opna á nýjar leiðir í miðlun, samstarfi og þátttöku. Það er því til mikils að hlakka fyrir bæjarbúa og aðra gesti á komandi árum, þegar hafist verður handa við að skrifa nýjan kafla í menningarsögu bæjarins. Höfundur er forstöðumaður menningarmála í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Skoðun Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
„
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun