Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar Birgir Olgeirsson skrifar 18. mars 2026 13:23 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir skuldara, leigjendur og barnafólk bera byrðarnar á meðan fjármagnseigendur varða með háum stýrivöxtum. VR segir allar líkur á að forsendur kjarasamninga séu brostnar og undirbúningur sé hafin fyrir mögulegar kjaraviðræður í haust. Vísir/Vilhelm Stéttarfélagið VR hefur hafið undirbúning fyrir mögulegar kjaraviðræður í haust. Halla Gunnarsdóttir formaður VR greinir frá þessu á Facebook en hún telur að allar líkur séu á að forsendur kjarasamninga bresti í haust.
Vinnumarkaðurinn samdi um langtímakjarasamninga árið 2024 og var markmiðið með þeim að koma böndum á verðbólguna með því að semja um lægri launahækkanir en áður. Samningarnir voru þó með forsenduákvæði sem inniheldur tvo endurskoðunarpunkta. Sá fyrri var í september í fyrra og mældist verðbólgan þá undir 4,95% viðmiðinu. Næsti endurskoðunarpunktur er í september á þessu ári. Ef verðbólgan mælist yfir 4,7% opnast heimild til að segja upp samningnum, að því gefnu að ekki náist að semja um viðbragð við forsendubresti. Eins og sakir standa er verðbólgan í 5,2% og verðbólguhorfur eru ekki bjartar næstu mánuði. Greiningardeildir bankanna spá því að verðbólgan verði há að minnsta kosti fram á sumarið. Stýrivexti verði hækkaðir ef laun hækka Peningastefnunefnd hækkaði stýrivexti um 0,25% í morgun, en ákvörðunin var rakin til mikillar hækkunar olíuverðs. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar sagði að ef verkalýðsfélögin fari fram á launahækkanir næsta haust muni það leiða til hækkunar stýrivaxta. Halla Gunnarsdóttir segir að óháð hækkunum á olíuverði muni forsendur kjarasamninga að öllum líkindum bresta. Hún kallar eftir samstilltu átaki. „En bæði stjórnvöld og stór fyrirtæki hafa ekki staðið við sitt og þá er traustið lítið,“ segir Halla. Vonirnar endanlega brostnar Hún segir núgildandi kjarasamninga hafa verið gerða eftir forskrift Seðlabankans, innan þess svigrúms sem hann áætlaði, og launafólk hafi fallist á lágar launahækkanir á tímum hárrar verðbólgu í von um að verðbólga myndi lækka og stýrivextir líka. Þær vonir séu hins vegar endanlega brostnar. „Fyrirtækin áttu að halda aftur af sér í verðhækkunum og hið opinbera átti að hemja gjaldskrárhækkanir og takast á við húsnæðismálin, sem eru stærsta viðfangsefnið. Hvorugt hefur gengið eftir, launafólk sat eitt eftir og hefur greitt þetta ástand dýru verði,“ segir Halla. Hækkun stýrivaxta muni ekki stöðva verðbólgu Skuldarar, leigjendur og barnafólk beri byrðarnar á meðan fjármagnseigendur séu varðir og hækkun stýrivaxta geri ekkert annað en að kreista viðkvæma hópa enn meira. „Hækkun stýrivaxta mun ekki: slá á einkaneyslu þeirra sem hagnast á háum vöxtum þvinga fyrirtæki til að láta af verðhækkunum stöðva gjaldskrárhækkanir hins opinbera byggja hús svo koma megi á stöðugleika í húsnæðismálum Lækka heimsmarkaðsverð á olíu. Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Verzlunarmannafélag ReykjavíkurVísir/Vilhelm Hækkun stýrivaxta mun því ekki stöðva þessa verðbólgu en það er hætta á að þeir geri illt verra. Þess vegna erum við í vítahring sem er erfitt að rjúfa,“ skrifar Halla. Vandinn sem verkalýðshreyfingin standi frammi fyrir sé að hún hafi ekkert annað en kjarasamninga til að halda í við verðbólgu og óðastýrivexti. Stjórnvöld virðist ekki ætla að beita ríkisfjármálunum til að taka á stöðunni og Seðlabankinn hóti að beita stýrivöxtum af enn meiri þunga með tilheyrandi kostnaði fyrir launafólk.
Seðlabankinn Kjaramál Tengdar fréttir „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ótti við forsendubrest kjarasamninga er að aukast meðal aðila innan Samtaka atvinnulífsins. Mjög margir mismunandi þættir spila inn í aukna verðbólgu hér á landi, sem nú mælist um 5,2 prósent, en nýleg áform virðast ekki líkleg til að sporna við henni. Þetta segir Bjarni Benediktsson, nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 9. mars 2026 20:36 Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Fleiri fréttir Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Sjá meira
„Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ótti við forsendubrest kjarasamninga er að aukast meðal aðila innan Samtaka atvinnulífsins. Mjög margir mismunandi þættir spila inn í aukna verðbólgu hér á landi, sem nú mælist um 5,2 prósent, en nýleg áform virðast ekki líkleg til að sporna við henni. Þetta segir Bjarni Benediktsson, nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 9. mars 2026 20:36