„Hann var eins og spenntur krakki í leikfangabúð“ Sindri Sverrisson skrifar 18. mars 2026 13:51 Gylfi Þór Sigurðsson er í íslenska landsliðinu á nýjan leik en Albert Guðmundsson fær hins vegar hvíld. Samsett/KSÍ/Getty „Mér fannst hann eiga skilið að vera í þessum hópi,“ sagði Arnar Gunnlaugsson um valið á Gylfa Þór Sigurðssyni í landsliðið á nýjan leik. Hann hreifst mjög af framgöngu Gylfa í Mexíkó í síðasta mánuði.
Frá því að Arnar tók við landsliðinu hefur Gylfi ekki verið í aðalhópnum en hann var hins vegar valinn í vináttulandsleik gegn Mexíkóum í febrúar, þegar hópurinn var nánast bara skipaður leikmönnum úr Bestu deildinni. Núna fær Gylfi, markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi, hins vegar að spila með hinum bestu leikmönnum þjóðarinnar, gegn Kanada og Haítí í Toronto í lok þessa mánaðar. En af hverju að velja Gylfa nú en ekki fyrr? „Það heillaði mig frá fyrsta símtali sem ég tók við hann að hann var eins og spenntur krakki í leikfangabúð, að joina í Mexíkó, sem kannski fyrir fram miðað við hans feril hefði ekki verið mest spennandi verkefni í heimi. En hann var svo tilbúinn, kom svo til Mexíkó og var algjörlega frábær, innan vallar sem utan,“ sagði Arnar. „Ég held að með Gylfa, Jóa og Aron, að þeir geti hjálpað okkur í haust að því gefnu að þeir verði í góðu standi og spili reglulega. Ég er sannfærður um það,“ sagði Arnar en vináttulandsleikirnir nú og í sumar eru hluti af undirbúningi fyrir nýja leiktíð í Þjóðadeildinni í haust. Jóhann Berg Guðmundsson er hins vegar ekki í hópnum núna, og ekki heldur Albert Guðmundsson. Meiðsli ráða ákvörðuninni um Albert en Jóhann er án félags og hefur verið sterklega orðaður við Breiðablik. Taldi betra að Albert fengi hvíld „Ég átti gott samtal við Jóa í gær eða fyrradag. Við töldum það best að hann yrði ekki í þessum hópi, sem hann skildi mjög vel. Það eru ákveðin tímamót núna hjá kappanum um hvað gera skal. Ég tjáði honum það að ég teldi að hann gæti hjálpað okkur í haust, en svo hefur maður ekki áhrif á hvað hann og hans fjölskylda velja. Mögulega koma þau heim og það væri mikil innspýting fyrir Bestu deildina að sjá hann og Gylfa kljást í fyrsta leik í Bestu deildinni. Núna þarf hann að liggja undir feld og taka ákvörðun í framhaldinu en ef þeir eru „all in“ og í standi tel ég að þeir geti hjálpað mikið í haust. Albert hefur verið að ströggla mikið með ökklann á sér í vetur. Þetta er leiðinlegt. Maður hefði getað valið hann en þá missir hann af góðu tækifæri til að jafna sig almennilega. Hann fer í sprautumeðferð. Stundum er skammtímaávinningur ekki góður. Þó að hann vildi koma og spila þá töldum við þetta langbest í stöðunni, að hann myndi fá sig fullkomlega góðan, taka sprautumeðferðina og eiga góðan séns á að klára tímabilið vel fyrir sitt félag,“ sagði Arnar.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Fleiri fréttir „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Sjá meira