„Einn leikur eftir og því miður erum við ekki með pálmann í höndunum“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 18. mars 2026 21:07 Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Stjörnunnar, var feginn að hafa landað stiginu í lokin. Vilhelm Gunnarsson Það stefndi allt í að Stjarnan næði lífsnauðsynlegum sigri í fallbaráttunni í Olís deild kvenna í kvöld. Fjögurra marka forskot gufaði upp á lokamínútunum gegn Fram og niðurstaðan 34-34 jafntefli. Þrátt fyrir vonbrigðin getur liðið haldið í vonina um að halda sæti sínu í deildinni fyrir lokaumferðina. „
Já takk fyrir að minna mig á það,“ svaraði Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Stjörnunnar, þegar hann var spurður hvað hefði farið úrskeiðis á lokamínútunum, þegar liðið missti niður fjögurra stiga forystu og varð að sætta sig við jafntefli. „Við vorum bara orðnar þreyttar, þetta var baráttuleikur og stutt síðan við spiluðum síðasta leik. Ég er eiginlega bara guðslifandi feginn að hafa náð þessu stigi, maður sá alveg að mjólkursýran var farin að láta til sín sjást hérna undir lokin.“ „Við byrjuðum strax að undirbúa okkur strax eftir síðasta leik fyrir þennan leik og við ætluðum náttúrulega bara að vinna þennan leik. Við vorum hársbreidd frá því, það er eiginlega ekki hægt að segja annað.“ Selfoss og Stjarnan eru bæði með sex stig í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar þegar komið er að lokaumferðinni. Stjarnan þarf að minnsta kosti jafntefli og jafnframt að treysta á að ÍR leggi Selfoss að velli ætli liðið að halda sæti sínu í deildinni. „Þetta stig gefur liðinu trú en það hefur ekki vantað trú hjá mér síðan ég kynntist þessum stelpum. Ég ætla að vona að þetta gefi liðinu eitthvað. Þetta var hörkuleikur og hörkustig á móti góðu liði þegar allt var undir.“ „Það er einn leikur eftir og því miður erum við ekki með pálmann í höndunum okkar. Við þurfum svolítið að treysta á að góðvinur minn Grétar Áki Andersen og stelpurnar hans í ÍR vinni Selfoss í lokaumferðinni. Ég ætla að vona að þær sýni þeim leik smá virðingu, og á sama tíma að Haukar sýni okkur virðingu líka á laugardaginn þrátt fyrir að ekki sé mikið um að keppa.“
Olís-deild kvenna Stjarnan Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Sjá meira