Nottingham Forest og Crystal Palace fóru bæði áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2026 20:33 Elías Rafn Ólafsson og félagar í Midtjylland komust ekki áfram í kvöld. Getty/Martin Rickett Nottingham Forest og Crystal Palace verða bæði áfram með í Evrópukeppnunum eftir að hafa fagnað sigri á útivelli í kvöld. Palace vann eftir framlengingu í Sambandsdeildinni en Forest-menn unnu í vítakeppni í Evrópudeildinni.
Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í danska félaginu Midtjylland eru úr leik eftir 3-0 tap í vítakeppni á móti Nottingham Forest. Elías Rafn hélt hreinu í 1-0 sigri í fyrri leiknum á Englandi en Forest-menn skoruðu tvisvar hjá honum í venjulegum leiktíma í dag. Nicolás Dominguez kom Forest í 1-0 með skalla á 41. mínútu eftir fyrirgjöf Nikola Milenkovic. Ryan Yates bætti svo við öðru marki á 52. mínútu með þrumuskoti fyrir utan teig. Martin Erlic minnstaði muninn í 2-1 og því stóðu leikar 2-2 samanlagt. Ekkert var skorað í framlengingunni og Danirnir skoruðu ekki heldur í vítakeppninni. Á meðan Forest-menn nýttu allar þrjár vítaspyrnur sínar á móti Elíasi klúðruðu liðsfélagar hans öllum þremur vítum sínum. Tvær fóru í stöngina og sú þriðja hitti ekki markið. Ismaila Sarr var hetja Crystal Palace þegar liðið fór áfram eftir 2-1 sigur á AEK Larnaca á Kýpur. Sarr skoraði bæði mörkin, þar á meðal sigurmarkið í framlengingu. Fyrri leikurinn endaði með markalausu jafntefli í Englandi og því fór Palace áfram 2-1 samanlagt. Sarr kom Palace í 1-0 á 13. mínútu en Enric Saborit jafnaði metin á 63. mínútu. Saborit fékk sitt annað gula spjald tíu mínútum síðar og heimamenn kláruðu leikinn manni færri. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og því varð að framlengja. Sarr skoraði sigurmarkið á 99. mínútu og Kýpverjarnir misstu síðan annan mann af velli með rautt spjald og enduðu því níu á móti ellefu.
Evrópudeild UEFA Danski handboltinn Nottingham Forest Crystal Palace FC Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira