Innlent

Slökkvi­lið kallað út vegna sprengingar í Korn­görðum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Mikill viðbúnaður er á svæðinu. Sprengingin varð í Fóðurblöndunni. 
Mikill viðbúnaður er á svæðinu. Sprengingin varð í Fóðurblöndunni.  Magnús Atlason

Slökkviliðið hefur verið kallað út vegna einhvers konar sprengingar í Korngörðum í Fóðurblöndunni. Einhver slys eru á fólki og er slökkvilið að leita allra sem voru í húsinu. 

Samkvæmt upplýsingum frá sjónarvottum er töluverður viðbúnaður á vettvangi. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvernig sprengingin varð en hún varð inni í húsnæði Fóðurblöndunnar í Korngörðum.

„Það er vinna á vettvangi við að ná tölu yfir alla þá sem voru í húsinu þegar sprengingin varð. Það eru einhver slys á fólki. Það er enginn eldur en var tilkynnt um það, það var ekki þegar slökkvilið kom á vettvang,“ segir Sveinbjörn Berentsson, deildarstjóri á aðgerðarsviði.

Viðbúnaður er við skrifstofur Inness en sprengingin virðist hafa orðið þar samkvæmt sjónarvottum. Magnús Atlason
Sjúkrabílar og slökkvilið var kallað að vettvangi. Magnús Atlason



Fleiri fréttir

Sjá meira


×