Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Lovísa Arnardóttir skrifar 20. mars 2026 07:51 Hluti hliðar hússins fór af við sprenginguna. Vísir/Vilhelm Lögregla segir vinnuslys í Fóðurblöndunni í Korngörðum í Reykjavík alvarlegan atburð. Þrír hafa verið fluttir á slysadeild og fólki einnig sinnt á staðnum. Slökkvilið var kallað út í morgun og er töluverður viðbúnaður á svæðinu.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að um vinnuslys hafi verið að ræða þegar þar varð sprenging í húsi í Korngörðum, en tilkynning um málið barst lögreglu rétt fyrir klukkan hálfátta. „Viðbragðsaðilar héldu strax á vettvang, en ljóst er að um alvarlegan atburð er að ræða. Það eru eindregin tilmæli frá lögreglu að fólk haldi sig fjarri staðnum, bæði til að trufla ekki störf viðbragðsaðila og eins til að tryggja greiða aðkomu þeirra til og frá vettvangi,“ segir í tilkynningunni og að frekari upplýsingar verði veittar eftir því sem vinnu viðbragðsaðila vindur fram. Miklar skemmdir urðu á húsinu. Verktakar voru við vinnu í húsinu. Vísir/Vilhelm Þrír fluttir „Nú er búið að finna alla sem voru í húsinu og búið að flytja þá sem þurftu aðstoð á sjúkrahús og við erum að sinna þeim sem voru á staðnum með aðstoð Rauða krossins,“ segir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri, og að hann telji að þrír hafi verið fluttir á slysadeild. Það sé verið að sinna fleirum á vettvangi. Sigurjón segir að verktakar hafi verið að vinna í húsinu og suðuvinna í gangi en það sé óljóst hvað nákvæmlega varð til þess að sprengingin varð. „Núna erum við komin með Rauða krossinn og erum að sinna fólkinu sem er að vinna þarna í kring. Það eru stórar skemmdir á húsinu,“ segir hann að lokum. „Það eru nokkrir starfsmenn og sjálfboðaliðar úr viðbragðshópum sem eru að fyrst og fremst að veita aðhlynningu og sálrænan stuðning,“ segir Sunna Ósk Logadóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins. Hún segir allt til reiðu í skrifstofu Rauða krossins í Efstaleiti til að taka á móti fólk ef en þangað hafi enginn komið enn og minnir á að Hjálparsíminn 1717 er opinn allan sólarhringinn og þangað er alltaf hægt að leita eftir sálrænum stuðningi. Sprengingin varð í húsnæði Fóðurblöndunnar. Vísir/Vilhelm Samkvæmt upplýsingum frá sjónarvottum er töluverður viðbúnaður á vettvangi. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvernig sprengingin varð en hún varð inni í húsnæði Fóðurblöndunnar í Korngörðum. Þegar Vísir talaði við slökkvilið í morgun var verið að leita að öllu starfsfólki. „Það er vinna á vettvangi við að ná tölu yfir alla þá sem voru í húsinu þegar sprengingin varð. Það eru einhver slys á fólki. Það er enginn eldur en var tilkynnt um það, það var ekki þegar slökkvilið kom á vettvang,“ sagði Sveinbjörn Berentsson, deildarstjóri á aðgerðarsviði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, í morgun. Þekkt sprengingarhætta er af ryki í fóðurvinnslu þar sem unnið er með þurrt lífrænt efni. Eldur getur kviknað og sprengingar orðið við núning, mikinn hita eða neista. Mikill viðbúnaður er á svæðinu. Aðsend Viðbúnaður er við skrifstofur Inness í næsta húsi. Magnús Atlason Sjúkrabílar og slökkvilið var kallað að vettvangi. Magnús Atlason Fréttin hefur verið uppfærð nokkrum sinnum.
Slökkvilið Lögreglumál Reykjavík Sprenging hjá Fóðurblöndunni Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira