Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir og Oddur Guðni Bjarnason skrifa 20. mars 2026 14:45 Ágæta sveitarstjórnarfólk, nú er mér öllum nóg boðið eftir að ég las fundargerð sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps frá 18. mars 2026. Bókun oddvita sem fyrsta mál sveitarstjórnarfundar. Sjá bókun. Nú skal það tekið fram að ég undirritaður hef engin tengsl við þá lista sem eiga sæti í sveitarstjórn, er einungis íbúi í þessari ágætis sveit okkar og fylgist með þeim málum sem unnið er að í sveitarfélaginu. Að sjálfsögðu eru mörg mál sem manni líkar og eins ýmislegt sem mér líkar ekki. Með árunum sem færast yfir mann verður maður æ meira hugsi hvað má ganga langt í að þóknast græðgishagkerfi nútímans með að allt er fallt sama hvaða nöfnum það heitir, stórvirkjanir í hjarta samfélagsins, baðlón í friðlýstri þjóðlendu eða fiskurinn í ánum allt fallt fyrir undirgefni fjármagnsins og eigenda þeirra. Í sveitarstjórn Skeið/Gnúp eru fimm kjörnir fulltrúar af þremur listum þrír af L-lista, einn af E-lista og einn af U-lista. Fulltrúar L-lista fara með meirihluta og er oddviti Haraldur Þór Jónsson, þessi meirihluti er dyggilega studdur af fulltrúa E-lista svo ekki verður dregið hnífsblað þar á milli. Oddviti hefur farið mikinn til að þóknast þeim aðilum sem ásælast auðlindirnar sem eru innan sveitarfélagsins, það er Landsvirkjun með tvær stór virkjanir og Rauðukambar með hótel og baðlón í Þjórsárdal og hefur maður stundum fengið það á tilfinninguna að þessir aðilar hafi sína fulltrúa í sveitarstjórninni, allt er gert til að þóknast þessum aðilum, berja niður þá sem ekki eru sammála oddvitanum og hans hlaupatátum eins og sjá má í bókun oddvita og meirihluta sveitarstjórnar frá 18. mars. Þar er fulltrúi U-listans vændur um að standa á móti öllum „góðum málum“. Að geta ekki hlustað og virt sjónarmið og skoðanir samstjórnarmanna. Þetta er tilhneiging oddvita til einræðis og þöggunar eins og það kemur fram í bókunni. Eftirleiðis mun oddviti ekki veita fulltrúa U-lista neinar upplýsingar af störfum meirihluta svona virkar lýðræðið á þeim bænum, hjá sumum þekkt víða hér á landi og út í hinum stóra heimi. Að þóknast til valda getur birst á marga vegu t.d. fyrir réttu ári síðan fékk Landsvirkjun Harald Þór oddvita til að taka yfir Veiðifélag Þjórsár sem hefur það hlutverk að verja lífríki Þjósár, Landsvirkjun veit að það er ekki hægt að virkja Þjórsá án þess að fórna stæðsta vilta laxastofni landsins og í Norður Atlanshafinu þarna þurfti Landsvirkjun samviskulausan aðila til að svæfa Veiðifélagið þar var Haraldur Þór til valin og skilar hann því hlutverki vel. Eitt af því sem maður rak augun í títtnefnda bókun var að væna fulltrúa U-lista um að bókun hans sem er opinber í fundargerð sveitarfélagsins um athugasemdi við lagningu Búðafossvegar sé uppistaða kæru Náttúrugriða til Úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar. Þetta mál getur aldrei verið á borði sveitarstjórnar og er fyrir utan hennar lögsögu en Haraldur Þór velur að koma þessu sem sök á fulltrúa U listans. Það er nú þannig að ef framkvæmdaraðilar hverjir sem þeir eru geta ekki farið eftir settum lögum og reglum þá er eðlilegt að málin séu kærð ef þau standast ekki lög og reglur. Ljóst var að bygging brúar raskaði enn frekar búsvæðum fiska í Þjórsá og því eðlilegt að þessi framkvæmd, sem er í raun hluti af virkjana mannvirkjum, færi í umhverfismat. Það er grundvallar misskilningur hjá oddvita að umhverfismat sé að jafnaði gegn framkvæmdum, fremur heldur til að vel takist til. Við þurfum öll að fara eftir þeim leikreglum sem í gildi á hverjum tíma og hvort sem það er Landsvirkjun, Rauðukambar, Vegagerðin eða Skeiða og Gnúpverjahreppur annað heitir spilling ef leikreglurnar eru ekki virtar og aðilar komast upp með þann ósóman að virða ekki lögin og leyfisveitingar sem við eiga. Þessi bókun sem meirihluti sveitarstjórnar lagði fram gegn minnihluta er öllum til háðungar og skammar sem að henni standa og ætti ekki að sjást í lýðræðislegu samfélagi, það er grundvallarréttur allra að koma fram með sín sjónarmið á sama hátt og ráðandi meirihluti. Að ætla að útiloka fulltrúa U-listans eða hvern annan sem ekki hefur sömu skoðun og oddvitinn um eðlilegar upplýsingar er alvarlegt brot á lögum. Því færi nú best fyrir fulltrúa L- og E-lista að draga þessa bókun til baka og biðjast afsökunar hver og einn undir eigin nafni, annars mun þetta draga dilk á eftir sér. Höfundar eru bændur og búa á Stöðulfelli. Haraldur Þór Jónsson, oddviti, leggur fram eftirfarandi bókun: “Á núverandi kjörtímabili sem senn er að enda komið hefur oddviti, fyrir hönd Samvinnulistans og sveitarstjórnar, unnið markvisst að uppbyggingu Skeiða- og Gnúpverjahrepps ásamt því að vinna ötullega að hagsmunagæslu fyrir íbúa sveitarfélagsins. Það hefur verið gert með mikilli upplýsingagjöf og samvinnu í sveitarstjórn, þvert á alla lista sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn. Allir í sveitarfélaginu vita að U-listinn hefur haft eitt meginmál sem sitt stefnumál sem er að berjast gegn því að Hvammsvirkjun verði byggð. Á kjörtímabilinu hefur einnig komið í ljós að megin stefna U-listans er að koma í veg fyrir/hindra frekari uppbyggingu í sveitarfélaginu. Það má sjá með bókunum fulltrúa U-listans í sveitarstjórn þegar kemur að virkjanamálum, uppbyggingu ferðaþjónustu í Þjórsárdal, uppbyggingu ferðaþjónustu við Selhöfða, uppbyggingu íbúða í Árnesi og einfaldra skipulagsbreytinga hjá landeigendum innan sveitarfélagsins. Mikilvægasta samgöngubót sem íbúar sveitarfélagsins hafa beðið eftir um langa tíð eru framkvæmdir við Búðafossveg og bygging nýrrar brúar yfir Þjórsá. Nú liggur fyrir að U-listinn hefur lagst harkalega gegn framkvæmdinni með umsögn inn í skipulagsgátt, umsögn sem inniheldur mikinn fjölda af rangfærslum. Einnig hefur Náttúrugrið kært úrskurð Skipulagsstofnunar um Búðafossveg til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, en kæran byggir að meginstefnu á umsögn frá fulltrúum U-listans. Mögulegt er að kæruferlið orsaki frestun á því að framkvæmdir við Búðafossveg hefjist á næstu vikum. Að mati oddvita er framganga U-listans í málinu slíkur trúnaðarbrestur gagnvart samfélaginu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að ekki sé lengur forsenda fyrir frekari upplýsingagjöf og samstarfi í sveitarstjórn við U-listann. Því mun oddviti ekki lengur flytja sína skýrslu í sveitarstjórn, heldur eingöngu vinna áfram náið í samstarfi við aðra fulltrúa í sveitarstjórn.“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skeiða- og Gnúpverjahreppur Mest lesið Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Það sem enginn segir þér um að flytja til annars lands Valerio Gargiulo Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson Skoðun Skoðun Skoðun Við stöndum vörð um Múlaþing Jónína Brynjólfsdóttir,Eiður Ragnarsson skrifar Skoðun Viðsnúningur í rekstri, hver borgar? Stefán Þór Eysteinsson,Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar Skoðun Fagmennska, forgangsröðun og framtíð þróunarsamvinnu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti gagnast ekki atvinnulífinu Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Það sem enginn segir þér um að flytja til annars lands Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hvers vegna og hvernig háskólanám? Hallur Þór Sigurðarson skrifar Skoðun Frá þekkingu til verðmæta – hvar slitna tengslin? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ilmurinn er svo lokkandi Einar Helgason skrifar Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Lækkum leikskólagjöld og tökum upp 100% syskinaafslátt Tinna Berg Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Í þágu heimilanna… utan ESB Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg en ómissandi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum! María Pálsdóttir skrifar Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Stefna í fíkniefnamálum á villigötum? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sátt í september verður að ná til allra Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Kærleikur og umburðarlyndi vinstrimanna Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Vöndum okkur Ingibjörg Ólöf Isaksen skrifar Skoðun Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar Skoðun Frístundaheimili eru grunnþjónusta Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar
Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun