Skoðun

Hæsta fram­lag til Loftbrúar frá upp­hafi stað­reynd

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Innviðaráðherra tilkynnti fyrir helgina nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar sem felur í sér að afslátturinn verður héðan í frá í fastri krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi. Upphaflega krónutalan sem var kynnt mætti ekki þörfum landsbyggðarinnar og við því var brugðist hratt síðustu daga.

Niðurstaða þeirrar vinnu er að 200 milljónum króna verður bætt við þær 600 milljónir króna sem áður voru fyrirhugaðar í að greiða niður Loftbrúna á næsta ári. Því verða 800 milljónir króna settar í að niðurgreiða allt að sex flugleggi fyrir íbúa á landsbyggðinni til að bæta aðgengi þeirra að miðlægri þjónustu á suðvesturhorninu og Norðurlandi.

Um verður að ræða hæstu upphæð sem nokkru sinni hefur verið sett í verkefnið. Hver ferð fram og til baka mun geta verið niðurgreidd um samtals 18 þúsund krónur.

Nauðsynleg kerfisbreyting

Loftbrúin var sett á laggirnar árið 2020 og síðustu árin sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna sat að völdum voru áætlaðar um 600 milljónir króna í hana á ári. Frá 2023 hefur heildarkostnaðurinn við Loftbrú farið yfir þá tölu og því hefur þurft að sækja frekari framlög á fjáraukalög. Mest fór heildarkostnaðurinn í 740 milljónir króna í fyrra og því ljóst að sú upphæð sem er ætluð í afslátt á næsta ári er töluvert hærri upphæð.

Ástæða þess að verið er að færa afsláttinn úr hlutfalli yfir í krónur er margþætt. Í fyrsta lagi getur afslátturinn orðið hærri í prósentum talið ef fólk bókar ódýrari fargjöld, hafi það tök á að gera það ef góður fyrirvari gefst á ferðinni.

Í öðru lagi dregur föst krónutala úr hvata flugfélaga til að hækka verð á innanlandsflugi sem nýtist bæði landsbyggðarfólki sem þarf að fljúga og hefur góð áhrif til að draga úr verðbólgu.

Skrúfað fyrir krana

Í þriðja lagi er ekki efnahagslega ábyrgt að vera með svokallaða krana í ríkisbúskapnum. Þar á ég við útgjaldaliði sem fara alltaf fram úr þeim upphæðum sem úthlutað er til þeirra um ófyrirséða upphæð.

Slíkir kranar voru algengir í tíð síðustu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna og léku sitt hlutverk í því að ríkissjóður hefur verið rekinn á mörg hundruð milljarða króna yfirdrætti árum saman með miklum tilkostnaði fyrir alla íbúa landsins, bæði í dreifbýli og þéttbýli.

Það má til að mynda benda á að vaxtakostnaður ríkissjóðs var um 59 milljarðar króna árið 2021 en er áætlaður um 168 milljarðar í ár. Það er 109 milljarða króna munur. Það er ansi margt hægt að gera til að bæta líf landsmanna fyrir 109 milljarða króna á ári.

Látum verkin tala á meðan aðrir bara tala

Loftbrúin er landsbyggðinni lífsnauðsynleg. Það þekki ég vel sem íbúi á Austurlandi. Við þurfum að sækja alls kyns þjónustu í höfuðborgina og nágrenni hennar. Þar er miðstöð stjórnsýslu og heilbrigðisþjónustu. Auk þess kallar lífið oft á skyndileg ferðalög, til dæmis þegar sækja þarf jarðafarir þvert yfir landið með skömmum fyrirvara.

Sú breyting sem nú verður á þessu fyrirkomulagi mun skila meira fé en nokkru sinni áður í Loftbrúna. Því er dapurt að sjá pólitíska fulltrúa þeirra flokka sem fóru hér með völd árum saman, en völdu að setja minna fjármagn í að greiða niður flug fyrir fólk á landsbyggðinni og létu þá fjárhæð alls ekki fylgja verðlagi, setja á fót pólitískt leikrit um annað.

Ég og ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, höfum einbeitt okkur að því að láta verkin tala og skila árangri fyrir umbjóðendur okkar, í stað þess að standa í þannig leikgerð í fjölmiðlum. Að ná tökum á ríkisfjármálum, leggja fram atvinnustefnu sem stuðlar að því að störf verði til um allt land, stórauka framlög til heilbrigðismála með uppbyggingu út um allt land og rjúfa kyrrstöðu í samgöngumálum með fjármagnaðri áætlun og stofnun innviðafélags.

Sá árangur sem náðist um breytingu á Loftbrúnni um helgina er gott dæmi um þau vinnubrögð. Með samtölum og samvinnu leystum við málið.

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×