Sport

Vann í Banda­ríkjunum og jafnaði Ís­lands­met

Valur Páll Eiríksson skrifar
Elísabet Rut jafnaði vikugamalt Íslandsmet.
Elísabet Rut jafnaði vikugamalt Íslandsmet. mynd/ioc photos

Sleggjukastarinn Elísabet Rut Rúnarsdóttir fagnaði sigri á UTSA Invitational-mótinu í frjálsum íþróttum í Bandaríkjunum. Ekki nóg með það heldur jafnaði hún einnig Íslandsmet.

Metið átti Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir, sem hún setti fyrir aðeins viku síðan, er hún kastaði sleggjunni 71,41 metra.

Elísabet gat ekki verið minna kona en Guðrún og kastaði nákvæmlega jafn langt. Þær stöllur deila því metinu eftir þetta góða kast sem dugði Elísabetu fyrir sigri í Texas.

Áhugavert verður að sjá hversu lengi metið stendur hjá þeim tveimur en báðar eru líklegar til að slá það að nýju áður en langt um líður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×