Leiðindaveður um land allt, gular viðvaranir og óvissustig Atli Ísleifsson skrifar 23. mars 2026 07:11 Vegagerðin hefur sett fjölda vega á óvissustig í dag frá því fyrir hádegi vegna vonskuveðursins. Vísir/Vilhelm Alldjúp lægð fer til norðausturs fyrir sunnan land í dag. Henni fylgir vaxandi norðaustan- og austanátt, víða allhvasst eða hvasst og snjókoma seinnipartinn, en stormur eða rok allra syðst og þar fellur úrkoman ýmist sem rigning, slydda eða snjókoma.
Gular veðurviðvaranir verða í gildi vegna þessa frá hádegi og sleppa fáir landshlutar við vonskuveðrið um tíma í það minnsta. Á hádegi tekur viðvörun gildi á Suðurlandi og svo koll af kolli um mestallt landið fram til hádegis á morgun. Aðeins höfuðborgarsvæðið og Breiðafjörður sleppa við gula viðvörun að þessu sinni. Vegagerðin hefur sett fjölda vega á óvissustig í dag frá því fyrir hádegi vegna vonskuveðursins, þar á meðal á Mosfellsheiði, Í Þrengslum, Hellisheiði, Kjalarnesi og á Reykjanesbraut en óvissustig þýðir að vegurinn gæti lokast með skömmum fyrirvara.Sömu sögu er að segja frá Vesturlandi og þá er vegurinn um Ólafsfjarðarmúla lokaður vegna snjóflóðs sem féll á hann í gærkvöldi. Gular veðurviðvaranir verða í gildi vegna óveðurs frá hádegi. Veðurstofan „Undir kvöld má búast við talsverðri ofankomu á Austurlandi, en þá fer að draga úr vindi og úrkomu sunnanlands. Hiti yfirleitt um eða undir frostmarki. Það er því útlit fyrir leiðindaveður víða um land þegar líður á daginn og gular viðvaranir taka gildi í flestum landshlutum. Við suðurströndina hvessir strax í kringum hádegi, en á Norðurlandi taka viðvaranirnar gildi undir kvöld.Norðlæg átt á morgun, víða 8-15 m/s og él, en 13-20 og snjókoma á Austurlandi fyrri part dags. Suðvestantil verður hins vegar þurrt að mestu. Frost 1 til 7 stig,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðan 13-20 m/s og snjókoma eða él, en 10-18 seinnipartinn og dregur úr ofankomu. Þurrt að mestu suðvestanlands. Frost 1 til 7 stig. Á miðvikudag: Breytileg átt 3-10, en norðvestan 13-20 austantil fram eftir degi. Víða líkur á dálitlum éljum, en bjart að mestu á Suðausturlandi. Frost 2 til 10 stig. Á fimmtudag: Gengur í suðaustan 18-25 með snjókomu og síðar rigningu eða slyddu, en úrkomulítið norðaustantil og hægari vindur þar fram eftir degi. Hlýnar talsvert. Dregur úr vindi sunnan- og vestantil seinnipartinn með skúrum eða slydduéljum. Á föstudag: Suðvestanátt og slydda eða snjókoma með köflum, en þurrt að kalla austanlands. Hiti um eða yfir frostmarki. Á laugardag: Suðlæg eða breytileg átt og slydda eða rigning, en úrkomulítið norðaustantil. Hlýnar heldur. Á sunnudag: Norðvestan- og vestanátt og víða líkur á éljum. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira