Glódís spilar tímamótaleik á Old Trafford: „Þetta verður mjög sérstakt kvöld“ Sindri Sverrisson skrifar 25. mars 2026 13:32 Glódís Perla Viggósdóttir á fyrir höndum stórleiki í kvöld og í næstu viku. Getty/S. Mellar Glódís Perla Viggósdóttir er afar spennt fyrir því að spila á Old Trafford í kvöld, þegar hún leiðir lið Bayern München inn á völlinn í fyrr leikinn við Manchester United í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.
Um tímamótaleik er að ræða því kvennalið United hefur ekki áður komist svona langt í keppninni, og þá dugar ekkert minna en „Leikhús draumanna“ sem vettvangur. Liðin mætast svo aftur á Allianz Arena 1. apríl. „Þetta verður mjög sérstakt kvöld. Þetta er einstakur leikvangur með ríka sögu,“ sagði Glódís Perla fyrir leikinn í kvöld, samkvæmt Sport 1 í Þýskalandi. „Við elskum allar að spila svona stórleiki á stóru leikvöngunum, í einstöku andrúmslofti,“ bætti Glódís við. Þekkja vel framherja United Á meðal leikmanna í United-liðinu sem Glódís þarf að glíma við er þýska landsliðskonan Lea Schüller sem skipti frá Bayern til United í vetur. „Við erum allar svo glaðar að sjá hana. Hún var svo mikilvægur hluti af liðinu í langan tíma,“ sagði Glódís. Glódís Perla var hetjan þegar Bayern vann Arsenal í vetur. Nú bíður annar enskur andstæðingur.Getty/Mark Wieland Dreymir um að ná þrennunni Bayern er með ellefu stiga forskot á toppi þýsku deildarinnar, komið í undanúrslit þýska bikarsins, vann tvöfalt í Þýskalandi í fyrra og hefur orðið Þýskalandsmeistari síðustu þrjú ár í röð. Núna vill liðið hins vegar ná lengra í Meistaradeild Evrópu en fimm ár eru síðan það komst síðast í undanúrslit. „Við höfum verið alveg skýrar með það í vetur að við viljum komast lengra en síðustu ár. Næsta stóra markmið er að komast í undanúrslitin,“ sagði Glódís. Möguleikinn á að vinna stóru þrennuna, í fyrsta sinn, er til staðar: „Við eigum okkur allar þann draum að ná því en við tölum ekki mikið um það og setjum enga aukapressu á okkur, því við vitum að þessi draumur gæti orðið að veruleika ef við leggjum á okkur þá vinnu sem þarf á hverjum degi,“ sagði Glódís. Leikurinn hefst klukkan 20 í kvöld og er sýndur á Disney+.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Sjá meira