Salah og Messi saman í liði? Sindri Sverrisson skrifar 26. mars 2026 14:00 Lionel Messi og Mohamed Salah hafa mæst á fótboltavellinum en gætu nú orðið liðsfélagar. Getty/David S. Bustamante Talið er að Mohamed Salah gæti orðið liðsfélagi Lionels Messi, besta fótboltamanns sögunnar að mati Salah, þegar tíma Egyptans hjá Liverpool lýkur í sumar.
Þó að Salah hafi aðallega verið orðaður við sádiarabísku deildina er ljóst að mikill áhugi er á að fá hann í bandarísku MLS-deildina og er Inter Miami mögulegur næsti áningarstaður, samkvæmt frétt Marca. Í því sambandi er nefnt að hinn 33 ára Salah hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á Messi. „Ég elska Messi. Messi er Messi,“ sagði Salah við ESPN á sínum tíma. Þá var hann ekki í vafa þegar franski miðillinn L‘Equipe bað hann að bera saman leikmenn og setti Messi fyrir ofan sjálfan sig og Maradona. Le plus grand gaucher de l'histoire selon Mohamed Salah est... 👀Retrouvez son entretien ce samedi dans France Football. pic.twitter.com/TOtthiKk4X— L'Équipe (@lequipe) May 9, 2025 Að sama skapi hefur Messi talað um að þó að margir stórkostlegir leikmenn hafi komið frá Afríku þá sé Salah bestur þeirra. „Hann er einstakur leikmaður,“ sagði Messi. Umboðsmaður Salah, Ramy Abbas, hefur sagt að ekkert sé ákveðið um framtíð Salah, annað en það sem hann tilkynnti í vikunni – að þetta yrði hans síðasta tímabil hjá Liverpool. „Við vitum ekki hvar Mohamed spilar á næstu leiktíð. Það þýðir sömuleiðis að enginn annar veit það,“ sagði Abbas. Ljóst er að Sádi-Arabar vilja ólmir fá Salah sem er einn allra besti múslimski fótboltamaður sögunnar og afar vinsæll í Arabaheiminum. Stríðið í Íran gæti sett strik í reikninginn og þannig stuðlað að því að Salah og Messi sameini krafta sína í MLS-deildinni.
Enski boltinn Bandaríski fótboltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Fleiri fréttir Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Sjá meira