Barnlaus leikskóli Lovísa Arnardóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 26. mars 2026 11:13 Sigrún var að vinna í starfsáætlun næsta árs til að nýta tímann. Vísir/Lýður Valberg Sigrún Grétarsdóttir, leikskólastjóri í Hólaborg í Breiðholti í Reykjavík, var mætt til vinnu snemma í morgun en lágmarksopnun var í öllum leikskólum borgarinnar og mælst var til þess að fólk kæmi ekki með börnin nema nauðsyn væri.
Foreldrar og forráðamenn fengu póst í gær þar sem þau voru beðin að láta vita ef þau þyrftu á þjónustunni að halda. Ekki virðist hafa verið mikil þörf því fá börn eða jafnvel engin voru mætt í marga leikskóla. Það má þó eiga von á því að það breytist um klukkan 13. „Það er búið að vera afskaplega rólegt innandyra, ekki alveg eins rólegt úti,“ segir Sigrún en Tómas Arnar Þorláksson fréttamaður og Lýður Valberg tökumaður litu við í morgun. „Við erum mættar hérna tvær til að hafa leikskólann opinn fyrir þau sem þurfa á því að halda þó svo að veðrið sé svona. En reyndin er sú að það er ekkert barn hérna í dag,“ segir Sigrún. Hún segir það ekki koma á óvart. Yfirleitt þurfi einhverjir á því að halda, fólk í framlínustörfum, en í dag hafi enginn þurft á því að halda og frekar valið að vera heima. „Þetta er kannski ekki skrítið en óvanalegt,“ segir Sigrún og að þau starfi ekki í leikskóla til að hafa hann tóman. Opna fyrir alla vonandi um 13 Hún segir að um leið og appelsínugul viðvörun renni úr gildi opni leikskólinn aftur fyrir alla. „Vonandi verður það bara strax um eittleytið,“ segir Sigrún og að hún hafi nýtt tímann í morgun til að vinna um ýmis verkefni sem hafi setið á hakanum. Sigrún segir ánægjulegt að fólk hafi tekið viðvörunum alvarlega og hvað það beri mikla virðingu fyrir þeim. „Líka þennan hlýhug frá foreldrum að virkilega vilja vera í þessari samvinnu með okkur, að passa upp á að allir séu öruggir.“ Hægt er að fylgjast með nýjustu vendingum að veðri í vaktinni að neðan.
Veður Færð á vegum Skóla- og menntamál Leikskólar Reykjavík Óveður 26. mars 2026 Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira