Þorbjörg dómsmálaráðherra — enn einn spillingarpésinn? Einar Steingrímsson skrifar 26. mars 2026 13:14 Í síðustu viku birtist þetta á vef Dómsmálaráðuneytisins:„Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að flytja Rögnu Bjarnadóttur, skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu, í embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins frá og með 15. maí næstkomandi, með vísan til heimildar í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.“Þarna er verið að misnota gróflega undantekningu frá þeirri meginreglu að auglýsa skuli lausar stöður til umsóknar, enda hugmyndin að alltaf skuli skipa hæfustu fáanlegu manneskju í hverja stöðu. Og það er ekki hægt að vita hver er hæfasta fáanlega manneskjan nema auglýst sé, svo hver sem er geti sótt um.Skipanir af þessu tagi hafa færst í aukana síðustu árin (sjá t.d. hér og hér), og nú er svo komið að þetta virðist vera orðinn hluti af þegjandi samtryggingu stjórnmálaflokkanna sem nánast allir vilja heldur fá að misnota þetta sjálfir en að uppræta spillinguna. Þau sem héldu að núverandi ríkisstjórn yrði síður spillt en þær fyrri ættu að hafa orðið fyrir vonbrigðum, en þess hefur ekki orðið vart.Ekki bara þegir stjórnarandstaðan á þingi; engir fjölmiðlar virðast hafa gefið þessu gaum, og þeir helstu birtu bara tilkynningu dómsmálaráðherra um málið athugasemdalaust eins og ekkert væri sjálfsagðara.Að lokum má geta þess að þegar ég gagnrýndi þetta á Facebook fyrir nokkrum dögum skammaðist sumt fólk yfir því að illa væri vegið að Rögnu, sem væri vönduð manneskja. Það var rangt, enginn hafði sagt neitt um hana, enda lýtur gagnrýnin að misbeitingu ráðherra á valdi. En þetta er sorglega algeng afstaða á Íslandi, að telja sjálfsagt að víkja til hliðar þeim reglum sem eiga að koma í veg fyrir spillingu, af því viðkomandi telja sig þekkja persónulega manneskju sem skipuð er með þessum hætti. Þetta er líklega ein helsta ástæða þess að það er ekkert pólitískt siðferði á Íslandi, og þess að valdafólk kemst ítrekað upp með algert ábyrgðarleysi af alvarlegum mistökum eða jafnvel spillingu. Þið sem takið slíka persónulega afstöðu, í trássi við eðlilegar reglur um siðferði og meðferð valds, þið megið alveg vita að siðleysið þrífst í krafti afstöðu ykkar. Höfundur er stærðfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Steingrímsson Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar