Valur - ÍR 82-93 | Allt að sjóða upp úr þó enginn þyrfti neitt

Sindri Sverrisson skrifar
Dimitrios Klonaras var afar öflugur í kvöld.
Dimitrios Klonaras var afar öflugur í kvöld. Vísir/Vilhelm

Það var mikill hiti í mönnum á Hlíðarenda í kvöld þegar Valur og ÍR mættust í lokaumferð Bónus-deildar karla í körfubolta, þó að liðin hefðu í raun ekki að neinu að keppa.

Valsmenn enda í 4. sæti deildarinnar og ÍR í 7. sætinu, eins og ljóst var fyrir leikinn. Hins vegar skýrðist það í kvöld að Valur mun mæta Keflavík í 8-liða úrslitunum og ÍR mætir Tindastóli.

ÍR-ingar voru mun sterkari framan af fyrri hálfleik í kvöld og komust mest sautján stigum yfir, 44-27, en þá fóru pirraðir heimamenn, nánast æfir yfir dómgæslunni sem boðið var upp á, að bíta frá sér og minnkuðu muninn í fimm stig fyrir hálfleik, 47-42.

Valsmenn mættu svo mun einbeittari til leiks í seinni hálfleiknum og voru fljótir að komast yfir í þriðja leikhluta. Því svöruðu ÍR-ingar hins vegar með frábærum kafla í lok leikhlutans og komust í 71-62.

Gestirnir héldu áfram betur í byrjun fjórða leikhluta og fljótlega varð ljóst að þeir færu með sigur af hólmi enda ekki að sjá að Valsmenn vildu leggja allt í sölurnar úr því sem komið var, í leik sem ekki gat breytt lokastöðu liðanna.

Engu að síður öflugur sigur hjá ÍR-ingum sem ætla greinilega að koma af krafti inn í úrslitakeppnina í næstu viku á meðan að Valsmenn halda áfram að vera, tja, óútreiknanlegir eða þá kannski bara alls ekki nógu góðir til að gera atlögu að titlinum í ár.

Atvik leiksins

Dómgæslan fór alveg svakalega í taugarnar á Valsmönnum og maður veit ekki hversu langt Kristófer Acox og Frank Booker hefðu gengið í 2. leikhluta, þegar þeir óðu að einum dómaranna til að láta hann heyra það, áður en Keyshawn Woods tók hraðasta sprett leiksins til að stöðva þá. Kannski var þetta mótlætið sem þurfti til að vekja Valsmenn sem höfðu verið ansi rólegir fram að þessu en það dugði þó ekki til því ÍR-ingar voru heilt yfir einfaldlega mun beittari og betri í kvöld.

Stjörnur og skúrkar

Dimitrios Klonaras var frábær í kvöld og alltaf tilbúinn að taka af skarið. Endaði með 20 stig og 13 fráköst. Matej Kavas skoraði 22 en Tómas Orri Hjálmarsson var senuþjófur kvöldsins með frábæra skotnýtingu og alls 19 stig. Fátt um fína drætti Valsmegin og ljóst að menn eiga mikið inni fyrir úrslitakeppnina, vonandi fyrir þeirra hönd.

Stemning og umgjörð

Alltaf gaman á leikjum hjá ÍR með stuðningsmenn sem hata ekki að láta skotin fljúga úr stúkunni. Heyrði einu sinni eitthvað meira en klapp frá stuðningsmanni Vals sem var hins vegar fljótur að þagna. Annars var þetta samt lognið á undan storminum sem nú fer í hönd, þó að mikið hafi svo sannarlega heyrst í sigursælum og söngelskum gestunum.

Dómarar

Á sex leikja kvöldi var ekki hægt að búast við að fá bestu dómara landsins á gólfið í þennan leik, þar sem úrslitin skiptu ekki öllu máli. Þeir áttu vissulega erfitt kvöld en fengu líka óverðskuldað kjaftbrúk frá pirruðum leikmönnum.

Væntir mikils af Ghetto Hooligans í áhugaverðri seríu

Borche Ilievski, þjálfari ÍR, var ánægður með að sjá hungrið í sínum leikmönnum og stuðningsmönnunum, Ghetto Hooligans, sem virðast sannarlega klárir í að láta í sér heyra í Síkinu í næstu viku.

„Við erum mjög ánægðir með hvernig við enduðum deildarkeppnina, með fjórum sigrum í röð, og þó þessi leikur hefði enga þýðingu þá skiptir þetta allt máli. Núna er tímabilið búið og við þurfum að auka sjálfstraustið fyrir úrslitakeppnina.

Þetta verður áhugaverð sería. Tindastóll er gæðalið og ég ber fyllstu virðingu fyrir þeim. En í úrslitakeppninni er allt á núllpunkti og þetta er tíminn sem við látum ljós okkar skína. Þeir eiga heimavallarréttinn en ég býst við að okkar stuðningsmenn komi, að minnsta kosti einn hópur,“ sagði Borche og glotti en það vantaði ekkert upp á að þessi hópur sem hann vísaði til léti í sér heyra í kvöld:

„Þeir eru mjög spenntir og ég veit hvernig þeir eru, að skipuleggja sig núna og Ghetto Hooligans ætla að láta til sín taka alveg eins og leikmenn mínir. Þetta verður flott sería.“

Þá fagnaði Borche því að hafa endurheimt Kristján Fannar Ingólfsson og Tómas Orra Hjálmarsson en sá síðarnefndi var sérlega skotviss í kvöld. Óvissa er hins vegar um Björgvin Hafþór Ríkharðsson vegna augnvandamáls, að sögn Borche sem vonast til að Björgvin verði þó klár í næstu viku.

„Við þurfum þessa menn fyrir seríuna því hún gæti orðið löng og erfið,“ sagði Borche.

Finnur öfundar áhorfendur fyrir komandi veislu

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, fór ekki leynt með að sínir menn hefðu verið fjarri sínu besta í kvöld.

„Mér fannst þeir bara betur tengdir en við og heilt yfir betri þó að við ættum fínan sprett í þriðja leikhluta.

Við töluðum um að við ætluðum að nálgast þetta verkefni af einhverri fagmennsku en maður sá að við vorum ekki að gefa hundrað prósent í þetta. En ÍR-ingarnir gerðu vel. Skutu boltanum vel og voru bara flottir. Við sýndum okkar leik á köflum og það er fúlt að tapa því ég hefði viljað vinna og fara þannig inn í úrslitakeppnina en það verður bara að taka því,“ sagði Finnur.

Hann var þá nýbúinn að fá þær fréttir að fyrsti mótherji Vals í úrslitakeppninni yrði Keflavík en ekki KR eins og lengi var útlit fyrir. Hvernig verður að mæta Keflvíkingum?

„Við erum nýbúnir að spila við þá, spiluðum við þá þrisvar í vetur og þetta er hörkumannskapur, frábærir leikmenn og góður þjálfari. Þessi úrslitakeppni lítur þannig út fyrir mér að það eru átta mjög flott lið að fara inn í hana og þetta snýst bara um hverjir ná að sýna sinn besta leik hverju sinni. Gríðarlega spennandi og ég öfunda áhorfendur meira en mig sjálfan að vera í þessu. Fullt af flottum viðureignum og hlutum fram undan sem fólk getur hlakkað til og vonandi getum við sýnt okkar rétta andlit.

Ég hef trú á reynslunni í þessu liði og að við séum tilbúnir að sýna hvað í okkur býr. Við erum búnir að lenda í mörgum slæmum töpum og ná góðum sigrum inn á milli, fara í gegnum hæðir og lægðir, og ég tel það vera gott fyrir hópinn. Við tökum með okkur það góða og vöðum á þetta,“ sagði Finnur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira