Við getum ekki byggt vernd barna á tilviljunum! Arnrún María Magnúsdóttir skrifar 27. mars 2026 15:46 Börn segja frá ofbeldi. Það er staðreynd. Spurningin er hvort við kunnum að hlusta og bregðast við. Það gildir um okkur öll, sama hvaða hlutverki við gegnum í lífi barns. Ofbeldi gerist víða. Ekki bara á einum stað, heldur í ólíkum aðstæðum í lífi barns. Þess vegna dugar ekki að bregðast við þegar eitthvað kemur upp. Við verðum að byggja upp þekkingu, færni og öryggi áður. Það byrjar í leikskóla. Fyrstu ár barnsins eru þau mikilvægustu. Þar mótast heilinn, tengsl og tilfinningalegt öryggi. Þar lærir barnið að skilja sjálft sig og aðra, setja mörk og lesa í samskipti. Þess vegna þurfum við að þjálfa börn markvisst í samskiptum frá fyrstu árum.Að kenna þeim að setja mörk, virða mörk annarra og skilja eigin líðan. Verkfæri eins og Lausnahringurinn skapa tækifæri til að æfa þetta daglega í gegnum leikinn, samtalið og endurtekningu. Á sama tíma þarf fræðsla að vera skýr og raunveruleg: börn þurfa, miðað við aldur og þroska, að vita hvert þau geta leitað ef farið er yfir mörk þeirra rétt eins og við kennum brunavarnir og umferðaröryggi. Ábyrgðin er þó alltaf hjá fullorðnum. Við vitum að gerendur eru oftast þau sem barnið þekkir vel og það treystir. Þess vegna þarf fagfólk að vera vakandi fyrir breytingum á líðan og hegðun barna, hafa þekkingu til að taka eftir, hlusta og bregðast við. Þar stöndum við frammi fyrir vanda. Við erum of oft að bregðast við – í stað þess að fyrirbyggja.Við grípum inn þegar vandinn er orðinn sýnilegur, þegar skaðinn er skeður. Það er sorglegt – og það er hættulegt. Þetta á við á öllum skólastigum, leikskóla, þar sem grunnurinn er lagður, upp í grunnskóla og framhaldsskóla. Er forvarnarvinna í forgangi? Á sama tíma er lögð áhersla á að fjölga leikskólaplássum og litið á það sem lykilmál í aðdraganda kosninga. En það er hættulegt að gera kröfu um að taka við fleiri börnum án þess að tryggja öruggt húsnæði, mönnun og faglega umgjörð. Hvernig á að tryggja öryggi barna við slíkar aðstæður? Starfsmannavelta er mikil og ekki allir sem starfa í leikskólum hafa fengið þá þjálfun sem starfið krefst. Samt er ætlast til að þeir geti lesið í líðan barna, greint breytingar í hegðun og brugðist við mögulegum áföllum. Þetta er ekki gagnrýni á einstaklinga, fagfólk leggur sig fram daglega, hleypur enn hraðar ef til þess þarf. Ef við ætlum að standa undir eigin kröfum um velferð barna þurfum við að taka skrefið alla leið:– efla fagmennsku– tryggja raunhæfar aðstæður– gera forvarnir gegn ofbeldi að skyldubundnum hluta af menntun allra sem starfa með börnum Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveður skýrt á um rétt barna til öryggis og verndar. Sá réttur verður ekki tryggður nema við tökum hann alvarlega í framkvæmd. Heimili, skóli, samfélag og stjórnvöld þurfa að vinna saman – ekki þegar eitthvað fer úrskeiðis, heldur áður. Við vitum hvað þarf að gera.Við höfum þekkinguna. Samt veljum við of oft að bíða. Forvarnir eru ekki í forgangi og börnin borga verðið. Höfundur er leikskólakennari með áherslu á forvarnir í kennslu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikskólar Börn og uppeldi Mest lesið Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar