Messi er ekki enn búinn að ákveða sig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2026 22:48 Lionel Messi og félagar eiga titil að verja á HM í sumar. Það er ekki enn vitað hvort hann verði með á mótinu. Getty/Marc Atkins Argentínska goðsögnin Lionel Messi hefur enn ekki tekið ákvörðun um það hvort hann muni spila á HM í fótbolta í sumar þrátt fyrir að það sé aðeins 81 dagur þar til Argentína byrjar titilvörn sína.
Þetta segir argentínski landsliðsþjálfarinn Lionel Scaloni sem vill gera allt til að hinn 38 ára Messi verði með. Frekar spurning fyrir hann „Það er frekar spurning fyrir hann [Messi],“ sagði Scaloni þegar hann var spurður hvort Messi myndi spila á mótinu sem haldið verður í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Messi vann verðlaunin sem leikmaður mótsins á HM 2022 og er markahæsti leikmaður argentínska landsliðsins frá upphafi með 115 mörk. „Hvað mig varðar, þá vitið þið nú þegar hvar ég stend. Ég mun gera allt sem ég get til að tryggja að hann sé þar. Ég tel að, fyrir fótboltann, verði hann að vera þar. Það er ekki ég sem ákveð þetta. Það er undir honum komið, hugarástandi hans og líkamlegu ástandi hans,“ sagði Scaloni. Ekki bara Argentínumenn sem vilja sjá hann „Þetta er erfitt því það eru ekki bara Argentínumenn sem vilja sjá hann, allir vilja sjá hann,“ sagði Scaloni. „Ég vil að hann sé þarna. Það er undir honum komið að ákveða þetta. Hann hefur áunnið sér réttinn til að taka þá ákvörðun undir sinni hugarró. Við erum ekki að flýta okkur. Við vitum að hvað sem hann ákveður verður best fyrir liðið og hann. Við vonum að hann verði þarna,“ sagði Scaloni. 🚨🇦🇷 Argentina coach Lionel Scaloni: “I’ll do everything possible for Messi to be there at the World Cup”.“I think for the good of football he has to be there, but he’s the one who will decide”. pic.twitter.com/yKog1OoFOC— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 27, 2026 Scaloni staðfesti að Messi muni spila gegn Máritaníu (27. mars) og Sambíu (31. mars) í þessum landsleikjaglugga. Báðir vináttuleikirnir verða haldnir á La Bombonera-leikvanginum hjá Boca Juniors. Mun spila báða leikina „Messi mun spila báða leikina en við munum sjá hvort hann geri það strax frá upphafi leiks,“ sagði Scaloni. Argentína átti að spila gegn Spáni í Finalissima-leiknum í Katar 27. mars en leiknum var aflýst vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. „Að fá tvo leiki í viðbót á heimavelli, fyrir Argentínumann, er frábært tækifæri til að sjá Messi á vellinum. Tækifæri til að njóta þess sem við fáum að upplifa þegar hann er hér með okkur,“ sagði Scaloni.
HM 2026 í fótbolta Argentína Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira