Kennarar botna aftur ekkert í Ingu Sæland Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 28. mars 2026 11:43 Magnús Þór Jónsson formaður KÍ og Inga Sæland menntamálaráðherra. Vísir/Samsett Formaður Kennarasambands Íslands furðar sig á fullyrðingum menntamálaráðuneytisins um lengd skólaársins í íslenskum grunnskólum. Lögbundnir kennsludagar á Íslandi séu 180 talsins, það viti allir foreldrar grunnskólabarna, og það sé sambærilegt hinum Norðurlöndunum.
Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins segir minnisblað Ingu Sæland menntamálaráðherra og ekki síður færslur ráðuneytisins á samfélagsmiðlum í gærkvöldi með ólíkindum. Inga Sæland lagði minnisblað fyrir ríkisstjórnina í vikunni þar sem segir að nauðsynlegt sé að taka umræðuna upp í kjarasamningsviðræðum kennara og gera starfsaðstæður þeirra sambærilegri við aðra opinbera starfsmenn. Þar sagði hún einnig að kennsludagar í íslenskum grunnskólum væru færri en gengur og gerist í Evrópu og að íslensk börn fái sem nemi fjórum færri árum af grunnskólanámi en þau dönsku. „Allir foreldrar vita það að skólaár á Íslandi er 180 dagar. Hluti af þeim eru nýttir sem uppbrotsdagar og nýttir í alls konar nám. Það er mjög skýrt að kennsludagar eru 180 og það er sambærilegt á öllum hinum Norðurlöndunum,“ segir hann. Sambærilegt á Norðurlöndunum Hluti daganna 180 eru þemadagar og ýmis konar óhefðbundnir kennsludagar. En kennsludagar eru þeir og nemendur eru skólaskyldir þá daga, að sögn Magnúsar Þórs. Undirbúningsdagar, frístund og dagar án mætingarskyldu eru ekki taldir með. Svipað sé uppi á teningnum á hinum Norðurlöndunum. „Að sjálfsögðu er það þannig að það eru uppbrotsdagar á öllum hinum Norðurlöndunum og dagarnir eru nýttir á Íslandi sem þemadagar, tengjast árshátíðum nemanda og alls konar sem er hreint og klárt nám. Þó að það sé ekki talið sem fullur skóladagur í töldum kennslustundum er það með ólíkindum að menn skuli leggja það fram að það séu ekki kennsludagar.“ Ráðuneytið skilji ekki eigin gögn Hann segir minnisblað ráðherra og málflutning ráðuneytisins tala inn í raunveruleika sem kennarar, foreldrar og nemendur kannist ekki við. Kjaraviðræður ríkis og kennara hafi nú staðið yfir frá í haust og þetta útspil sé ekki til þess fallið að auka traust samningsaðila. „Ég treysti því að þessi umræða um skóladaga verði leiðrétt því það er ekki fallegt að setja þetta fram með þessum hætti því að það er einfaldlega ekki rétt. Það eru 180 kennsludagar í íslenskum grunnskólum og það er engin ástæða til að láta eins og að það sé með öðrum hætti,“ segir Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands.
Grunnskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Fleiri fréttir Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Sjá meira