Linda Líf með mark og stoðsendingu í fyrsta deildarleik Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. mars 2026 14:00 Linda Líf hefur staðið sig vel í fyrstu leikjunum með Kristianstad. Linda Líf Boama bregst vel við landsliðskallinu og byrjar tímabilið í sænsku úrvalsdeildinni af krafti. Hún skoraði og lagði upp í 3-2 sigri Kristianstad gegn Pitea í fyrstu umferðinni í dag.
Linda Líf hefur farið frábærlega af stað með Kristianstad og skoraði á dögunum í tveimur leikjum í röð í bikarkeppninni, áður en liðið féll svo úr leik í undanúrslitum. Í dag hófst deildarkeppnin í Svíþjóð og Linda Líf hélt sínu striki, jafnvel rúmlega það því hún bæði skoraði og lagði upp. Linda tók vel við boltanum á 12. mínútu, sólaði varnarmann og lagði fyrsta mark leiksins upp fyrir Tilda Persson. Linda var svo sjálf á ferðinni á 41. mínútu og skoraði skallamark sem kom Kristianstad 2-1 yfir eftir jöfnunarmark Pitea. Viktoria Persson átti fyrirgjöfina á Lindu sem beið á fjærstönginni. Linda var síðan tekin af velli á 82. mínútu fyrir Filippa Andersson Widén, sem skoraði þriðja mark Kristianstad áður en Pitea minnkaði muninn í 3-2 og það urðu lokatölur. Alexandra Jóhannsdóttir var einnig í byrjunarliði Kristianstad og spilaði allan leikinn. Nik Chamberlain skipti Elísu Lönu Sigurjónsdóttir síðan inn af varamannabekknum á 62. mínútu. Kristianstad mætir Djurgarden í næstu umferð en svo kemur landsleikjahlé. Linda Líf verður nýliði í íslenska landsliðinu sem mætir Úkraínu og Englandi í undankeppni HM. Alexandra Jóhannsdóttir var að vanda valin í hópinn.
Sænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira