Hjartnæm stund hjá Árna Gauti í Rosenborg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2026 18:12 Árni Gautur Arason þakkar fyrir flottar móttökur á Lerkendal-leikvanginum í dag. @rosenborgballklub Árni Gautur Arason, fyrrum markvörður íslenska fótboltalandsliðsins, var hylltur á Lerkendal-leikvanginum í dag þegar Rosenborg mætti Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Árni Gautur hefur sagt opinskátt frá veikindasögu sinni en hann er með Huntington-taugahrörnunarsjúkdóminn. Árni Gautur fékk verðskuldaðar og frábærar viðtökur á Lerkendal og það var einnig stutt viðtal við hann á miðlum félagsins. Þetta var hjartnæm stund fyrir hann sjálfan sem og þá sem þekktu til hans tíma hjá félaginu. „Ég hef ekki verið hérna lengi og það er frábært að koma hingað aftur,“ sagði Árni Gautur. Árni varði mark Rosenborg á árunum 1998 til 2003 og var í stóru hlutverki hjá þáverandi besta liði norska fótboltans. Hann var spurður út í það hvaða tilfinningar kæmu yfir hann þegar hann væri mættur aftur á gamla heimavöllinn sinn. „Það er stórkostlegt og minnir mig á þann frábæra tíma sem ég átti hér,“ sagði Árni, en hverjir voru hápunktarnir á tíma hans í Þrándheimi? „Það er nánast ómögulegt að svara því vegna þess að þeir voru svo margir. Ég var hér í sex ár, varð norskur meistari og spilaði í Meistaradeildinni á hverju ári. Ég spilaði með frábærum leikmönnum og með frábæru liði. Ég get því ómögulega nefnt eitthvað eitt,“ sagði Árni eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Rosenborg Ballklub (@rosenborgballklub)
Norski boltinn Mest lesið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti Slátturvél tók á loft í Svíþjóð Sport „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira