Syrtir að í sögu Hóla í Hjaltadal Hjalti Pálsson frá Hofi skrifar 30. mars 2026 12:32 Þessi hugsun hefur síðasta árið gerst áleitin, horfandi upp á umhirðuleysi og niðurlægingu hinnar ytri ásýndar Hólastaðar. Nú virðist einnig vegið þungt að innri gerð háskólasamfélagsins á Hólum. Í tæpar sjö aldir voru Hólar í Hjaltadal annar höfuðstaður Íslands, ásamt með Skálholti, þegar biskupar sátu þar með prestaskóla landsins á sínu forræði. Öldin átjánda var þjóðinni þungbær vegna farsótta, harðinda og mannfellis svo að jafnvel kom til umræðu að flytja eftirlifandi hræður burt af landinu, til Evrópu, nánar til tekið á Jótlandsheiðar. Síðasti biskup í Skálholti safnaðist til feðra sinna 1785 og seinasti Hólabiskupinn 1798. Kóngur úrskurðaði 1799 að Hólaprentsmiðja skyldi aflögð, og biskupsembættin 1801, sameinuð og flutt til Reykjavíkur. Hálfdan Einarsson rektor Hólaskóla barðist fyrir því að fá að halda skólanum en talaði fyrir daufum eyrum stjórnvalda í Kaupmannahöfn. Fyrir náð fékk hann þó að halda skólanum til 1804 þegar síðustu nemendurnir voru útskrifaðir. Árið 1802 voru Hólastólsjarðir seldar og staðurinn sjálfur sömuleiðis en það gleymdist að selja dómkirkjuna. Hún varð munaðarleysingi sem enginn vildi eiga, vegferð sem Hólastaður virðist á núna, og kom til umræðu að brjóta hana niður. Niðurstaðan varð að hún ætti sig sjálf og síðar Auðunarstofu og turninn en ríkið umsjónaraðili sem eigandi jarðarinnar. Litlu eftir aldamótin 1800 rifu eigendur Auðunarstofu, nærri fimm alda gamalt hús, til að selja úr henni viðina. — Hólastaður stóð sem örbæli eftir. En staðurinn reis úr rústum löngu síðar því árið 1882, á versta veðráttuáratug 19. aldar, tóku Skagfirðingar og Húnvetningar höndum saman og stofnuðu bændaskóla á Hólum. Hann óx og dafnaði – og síðan kom hnignunin. Ég, sem alinn var upp á næsta bæ við Hóla, mátti upplifa það að sjá skólann veslast upp á áttunda áratugi 20. aldar og lognast út af. En á 100 ára afmælinu var hann endurreistur vegna þess að ötulir menn völdust til forystu og stjórnvöld stóðu þar heils hugar á bak við. Í tímans rás fékk skólinn að útskrifa stúdenta og var síðan formlega gerður að háskóla árið 2007. Er sagan kannski með einhverjum hætti að endurtaka sig? Fyrir fáum dögum fékk ég í hendur „minnisblað“ frá framkvæmdahópi um Hóla í Hjaltadal, dagsett 15. október 2025. Þar er mikill fagurgali fram borinn til þess fallinn að slá ryki í augu og eyru. Ég býst við að þeir sem stóðu að samningu þessa minnisblaðs standi í þeirri trú að þeir séu að gera góða hluti, búnir að sannfæra sjálfa sig, og svara kalli tímans. En þarna koma fram hugmyndir sem bera vott um vanþekkingu og skilningsleysi á eðli og tilgangi Staðarins en skoðanir heimafólks á Hólum og velunnara hafa gróflega verið sniðgengnar. Að koma upp Hólastofu er reyndar jákvæð hugmynd og góðra gjalda verð. Hún hefði átt að vera komin fyrir löngu. Hins vegar þarf ekki glöggt auga til að sjá aðrar tillögur sem beinlínis eru til þess fallnar að höggva meginstoðir undan Hólastað sem háskólasetri. Lagt er til að kennsla í fiskeldisfræðum flytjist alfarið til Sauðárkróks og þar verði byggð upp öll aðstaða til þeirrar starfsemi. Raunar hefur starfsemi, kennsla og rannsóknir í fiskeldi um alllangt skeið farið að miklu leyti fram á Sauðárkróki en höfustöðvarnar verið á Hólum og þar er kynbótastöðin fyrir bleikjueldið. Ferðamáladeildin hefur að mestu verið rekin með fjarkennslu en mikilvægt er að fjarnámsbúnaður og aðstaða fyrir kennara og nemendur sé á Hólum í staðarlotum. En hestadeildin á samt samkvæmt tillögum að vera áfram á Hólum — enn um sinn að minnsta kosti. Ömurlegustu hugmyndirnar eru þó að selja skólahúsin og að stjórn og skrifstofur skólans skuli flytjast til Sauðárkróks „ekki síðar en á sumrinu 2026“, þær eru reyndar þegar komnar þangað. Að bera á borð tillögur um að selja skólahúsið, sem er hjarta staðarins og ímynd, og flytja skrifstofur skólans til Sauðárkróks er beinlínis geigvænlegt skref til niðurrifs háskólasamfélagsins á Hólum. Það væri fróðlegt að vita hvaðan þessar hugmyndir eru komnar. Að láta sér detta í hug að flytja sýningar Söguseturs íslenska hestsins í torfbæinn á Hólum er fráleit hugmynd. Þeim hundruðum milljóna sem áætlaðar eru til að koma upp færanlegu bráðabirgða kennsluhúsnæði við reiðhallirnar væri betur varið til að koma skólahúsinu í lag svo að það svari þörfum skólans og það er vissulega hægt sé vilji fyrir hendi. Ef þessar tillögur ná fram að ganga verður það upphafið að endalokum Háskólans á Hólum. Sú samvinna sem kynnt var og undirskrifuð á árinu 2024 við Háskóla Íslands var vitanlega skref að samruna og yfirtöku sem mun í framhaldi gerast. Mun það þjóna Háskóla Íslands í Reykjavík að efla Hólastað? Og hvers vegna er staðan orðin svona? Jú, í minnisblaðinu er það útskýrt að húsakynni staðarins svari ekki lengur kalli tímans eða hagsmunum skólans. Og hvers vegna er það?: Jú, ein meginástæðan er að eigandi Hóla hefur vanrækt viðhald staðarins og skólabygginganna. Allt þar til fyrir tveimur eða þremur árum bar húsbóndinn á Hólum ábyrgð á mestum hluta staðarhaldsins. Nú hefur þetta fengist aðskilið frá skólanum og skólabyggingarnar í slæmu ástandi vegna viðhaldsleysis. Á síðasta ári samþykkti Kirkjuþing með naumasta meirihluta að staðirnir Hólar og Skálholt þurfi ekki lengur að vera aðsetur vígslubiskupa. Nú á dögunum var snúið til baka með þessa ákvörðun, góðu heilli. Megi það verða fordæmi fleiri góðra verka og ákvarðana til eflingar Hólastað og skólans þar en ekki niðurrifs. Ef skóla- og staðarhúsin yrðu seld einhverjum peningamönnum? Hvað fengist svo sem fyrir þau? Hvers virði eru þau hin vanhirtu hús? — En kannski kemur einhver Nupo eða Ratcliff og kaupir. Megum við eiga von á að yfirvöld sjái einhvern tíma hag sinn í því að selja Þingvelli? Þegar sólu þekja ský, þrýtur skjól í ranni, getur ólund gutlað í gömlum Hólamanni. Höfundur er fyrrverandi ritstjóri Byggðasögu Skagafjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skagafjörður Skóla- og menntamál Háskólar Mest lesið Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Slönguspilið og svikamyllan Teitur Atlason skrifar Skoðun Þetta er algjört möst í fríið Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Þegar umræðan og staðreyndirnar fara ekki saman Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Skoðun Borgum ekki skuldir óreiðuríkja Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hvað er hægt að semja um? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð erum við? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026 Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar Sjá meira
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun
Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun